Klára námið með trompi Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 25. apríl 2015 13:00 Þessi ellefu manna hópur útskrifast í maí. Frá vinstri: Ólafur, Vala Kristín, Albert, Halldóra Rut, Dominique Gyða, Baltasar Breki, Eysteinn, Kristín (í efri röð) og Katrín. Sitjandi á gólfi: Þuríður Blær og Kjartan Darri. vísir/ernir
Við erum að fara að fljúga úr hreiðrinu,“ segir Dominique Gyða Sigrúnardóttir en hún er einn ellefu útskriftarnemenda leikarabrautar Listaháskóla Íslands. Hópurinn frumsýndi í gær verkið Að eilífu, eftir Árna Ibsen, en það er útskriftarverkefni nemendanna. Eftir sýningarnar eru þau útskrifaðir leikarar og almenningur fær vonandi að kynnast þeim á næstu árum í leikhúsinu, kvikmyndum og öðrum verkum. „Þetta er ljúfsárt, eins og þegar lífið gerist best. Það er erfitt að kveðja þennan hóp, við erum ótrúlega náin enda búin að vera saman á hverjum degi í þrjú ár. En það er líka kominn tími til að takast á við ný verkefni.“ Dominique viðurkennir að það sé svolítið ógnvekjandi að fara út í stóra heiminn úr öruggu skjóli skólans. En hún segir líka mikla spennu vera í hópnum. „Nokkrir í bekknum, svona um helmingur, eru á leiðinni inn í leikhúsin og eru komnir með samning. Aðrir eru að fara að vinna sjálfstætt. Það eru tækifæri úti um allt og aðalmálið er að missa ekki móðinn.“ Í gær var frumsýning og svo fær hópurinn eins dags frí. Á morgun tekur við tíu sýninga maraþon. „Þetta verður svolítil harka en ótrúlega gaman. Við erum að klára þetta með trompi. Við lofum mikilli gleði og algjörri glimmersprengju á sýningunni. Ég held að allir ættu að geta skemmt sér vel.“Hvað? Að eilífuHvar? Smiðjan, Sölvhólsgötu 13 Miðapantanir á svidslist@lhi.isHvenær? 26. apríl til 5. maíAðgangur ókeypis.
Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Lífið samstarf Fleiri fréttir Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Sjá meira