Að bjarga sjálfum sér Magnús Guðmundsson skrifar 22. apríl 2015 11:15 Maríanna Clara Lúthersdóttir er komin með smá fiðrildi í magann fyrir frumsýningu kvöldsins. Visir/Pjetur
Í kvöld verður frumsýnt leikritið Peggy Pickit sér andlit guðs eftir þýska leikskáldið Roland Schimmelpfennig en verk hans hafa á liðnum árum verið sýnd víða um heim og notið mikillar velgengni. Peggy Picket sér andlit guðs er hluti þríleiks um Afríku þar sem leikskáldið tekst á við flókið samband álfunnar við hinn vestræna heim. Leikendur eru þau Hjörtur Jóhann Jónsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Valur Freyr Einarsson en leikstjórn er í höndum Vignis Rafns Valþórssonar. Í verkinu segir frá endurfundum tvennra læknishjóna sem eftir útskrift völdu sér ólíka vegferð í lífinu. Önnur hjónin fóru þá leið að hefja störf á Vesturlöndum á meðan hin héldu til Afríku til að starfa sem læknar í hjálparstarfi. Þegar þau snúa heim frá Afríku þá koma vinahjónin saman og ólíkir heimar mætast yfir kvöldverði.Kristín Þóra Haraldsdóttir, Valur Freyr Einarsson og Maríanna Clara Lúthersdóttir í hlutverkum sínum í Peggy Pickit sér andlit guðs.Maríanna Clara Lúthersdóttir leikur ungu konuna sem hélt til Afríku ásamt eiginmanni sínum en hún segir persónu sína þó tæpast hafa bjargað heiminum. „Nei, ætli það. Hún fór kannski til Afríku til þess að bjarga heiminum en ætli hún læri ekki helst að það sé nauðsynlegt að bjarga sjálfum sér fyrst. Setja súrefnisgrímuna fyrst á sig og síðan á barnið eins og maður á að gera í flugvélum. Afríka kom henni að minnsta kosti á óvart. En þetta er mjög skemmtilegt verk þó svo það fjalli um alvarlega hluti. Ég tengi að minnsta kosti mjög auðveldlega við þetta. Bæði óþægilega varðandi þriðja heiminn og svo má maður ekki heldur gera of lítið úr sínum eigin vandamálum. Höfundurinn ætlaði sér upprunalega að skrifa aðeins um Afríku en það gekk ekki upp. Hann þurfti að tengja heim og hann þurfti þessar fjórar manneskjur til þess að ná utan um þetta. En þetta er bæði fyndið og dramatískt verk og fólk þekkir sig í því.“ Átakapunktur verksins snýst um endurfundi tveggja vinahjóna. Sex ár eru liðin frá aðskilnaði og það getur margt breyst á sex árum. „Það getur verið ákveðið áfall að fatta hvaða manneskjur við erum orðin. Draumar rætast en eru svo kannski eitthvað allt annað en væntingar stóðu til og þetta á við okkur öll. Þannig er þetta líka saga fólksins sem varð eftir heima og þannig saga okkar flestra.“
Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Sjá meira