Dómur um Flekklaus: Þessi bévítans fortíð Dómur skrifar 23. apríl 2015 12:00 Kápa bókarinnar Flekklaus.
Bækur HHHHH Flekklaus Sólveig Pálsdóttir JPV-útgáfa Flekklaus er þriðja bók Sólveigar Pálsdóttur um lögguteymið Guðgeir, Særós og Andrés, sem við þekkjum úr bókunum Leikarinn og Hinir réttlátu. Hér er Guðgeir í aðalhlutverki, nýkominn úr strangri krabbameinsmeðferð og í upphafi sögu í hvíldarfríi í Smálöndum Svíþjóðar. Það frí snýst þó upp í andhverfu sína þegar hann er dreginn inn í óleyst sakamál frá 1985, mál sem stendur honum mun nær en lesandann getur grunað lengi framan af. Er óhætt að segja að öll tilvera lögreglumannsins geðþekka snúist á hvolf með ævintýralegum vendingum sem kannski eru ekki sérlega trúverðugar en ná þeim tilgangi sínum að halda lesandanum við efnið og fá hann til að halda áfram að fletta. Sagan er haganlega smíðuð, glæpamálið úr fortíðinni fléttast vel inn í frásögnina úr nútíðinni og hvörfin í seinni hlutanum koma gjörsamlega á óvart. Lesandinn kynnist Guðgeiri nánar en í fyrri bókum, enda fer meirihluti sögunnar fram á hans heimavelli og inn í hana dragast eiginkona hans og börn. Það er því snjallt bragð hjá höfundinum að gera hann tortryggilegan og fá lesandann til að efast um heilindi hans. Það er nú einu sinni einn kröftugasti drifkraftur glæpasagna að lesandinn „standi með“ aðallöggunni og láti sig örlög hans eða hennar varða. Upp á það skortir ekkert hér. Stærsti veikleiki sögunnar felst hins vegar í hinni aðalpersónunni, Kirsten hinni sænsku, sem getur seint talist sannfærandi persóna. Til þess er hún of einhliða og hvatinn að framkomu hennar við Guðgeir er því miður ekki sérlega sannfærandi, sem dregur töluvert úr spennunni. Það er alltaf slæmt þegar lesandinn stendur sig að því að fnæsa háðslega yfir því hversu ótrúverðug frásögnin er. Flekklaus tekur þó á ýmsum málum sem full ástæða er til að draga fram; hinum íslenska klíkuskap sem getur jafnvel forðað glæpamönnum frá refsingu, átökum eiginmanns við sjálfan sig eftir að hafa freistast til framhjáhalds, þeirri stefnu fjölmiðla að taka æruna af fólki í beinni útsendingu og fleira mætti nefna. Allt hið besta mál og sýnir að Sólveigu liggur ýmislegt á hjarta sem full ástæða er til að fylgjast með. Af niðurlagi þessarar sögu er ljóst að hún hefur hvergi nærri lokið sér af með sögu Guðgeirs og það verður spennandi að sjá á hvaða slóðir hún leiðir hann næst. Það er vaxandi trend í norrænum glæpasögum að gera glæpinn sjálfan nánast að aukaatriði en beina kastljósinu þess í stað að afleiðingum hans á þá sem á einhvern hátt tengjast honum. Flekklaus sver sig svikalaust í þá ættina og gerir það ágætlega, þótt eflaust megi um það deila hvort afleiðingarnar sem þar er lýst séu sannferðugar eður ei. Hver var annars að halda því fram að krimmar ættu að vera trúverðugir? Friðrika Benónýsdóttir Niðurstaða: Flekklaus er ekki flekklaus glæpasaga en innsýn í líf og forsögu löggunnar Guðgeirs gerir hana áhugaverða og heldur lesandanum við efnið.
Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Fleiri fréttir Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Sjá meira