Sætar sprengjukökur Anna Guðjónsdóttir skrifar 18. apríl 2015 14:00 Kökurnar verða merktar nöfnum fórnarlamba með blóðrauðum matarlit. Solveig segist vonast til að samræður myndist milli sýningargesta, enda á verkið að vekja fólk til umhugsunar. vísir/ernir
Sætar sprengjur verða í boði á útskriftarsýningu meistaranema í myndlist og hönnun frá Listaháskóla Íslands. Í gjörningi myndlistarkonunna Solveigar Thoroddsen bakar hún kökur en með þeim vill hún minnast fórnarlamba sem látist hafa í stríðsátökum. „Maður fyllist ákveðinni vanmáttarkennd þegar maður sér daglegar fréttir af ofbeldi og stríðsátökum. Það er skelfilegt að geta ekkert gert og við brynjum okkur gegn þessu,“ segir Solveig og verkið er því hennar leið til að vekja athygli á áhrifum stríðs á gerendur, þolendur og samfélög í heild. Hún segist vonast til þess að gjörningurinn muni vekja fólk til umhugsunar. „Það vilja allir frið í heiminum en þá er ekki hægt að láta svona hluti afskiptalausa. Þetta eru mín mótmæli, ég vil að fólk verði meðvitað og að þetta leiði til einhvers,“ segir Solveig. Solveig nostrar við hverja köku sem hún skreytir með glassúr og ritar síðan nöfn fórnarlamba stríðsátaka á þær. „Það er auðvitað ákveðin þversögn í því að standa glaðlynd í eldhúsinu að baka og skrifa síðan nöfn fórnarlamba með blóðrauðum matarlit á hverja köku,“ segir Solveig. Útskriftarsýning meistaranema í myndlist og hönnun frá Listaháskóla Íslands er í Gerðarsafni 18.apríl til 10. maí.
Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Fleiri fréttir Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Sjá meira