Í Balmain pilsi í höllinni Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 18. apríl 2015 09:45 Anne-Marie Grikklandsdrottning, Friðrik krónprins og Dorrit Moussaieff sitja hér saman til borðs í Kristjánsborgarhöll. Krónprinsinn er hér í miðri ræðu. vísir/getty
Dorrit Moussaieff forsetafrú var svo sannarlega glæsileg í sjötíu og fimm ára afmæli Margrétar Þórhildar Danadrottningar í Kaupmannahöfn á miðvikudaginn. Dorrit er þekkt fyrir smekklegan klæðaburð og var svo sannarlega engin undantekning á því í afmæli drottningarinnar. Samkvæmt heimildum frá skrifstofu forseta Íslands rekur ljósbleika pilsið uppruna sinn til franska tískuhússins Pierre Balmain og við pilsið klæddist Dorrit útsaumuðum topp. Yfir axlirnar bar forsetafrúin blómaskreytt sjal sem keypt var á markaði á Indlandi. Skartgripirnir voru ekki af verri endanum en eyrnalokkarnir og hálsmenið, sem skreytt eru dökkgrænum og hvítum demantssteinum, koma frá skartgripamerkinu Moussaieff. Skartgripamerkið er í eigu fjölskyldu Dorritar og reka þau verslanir í London, Hong Kong, Genf og Frakklandi. Mikið var um dýrðir í afmælinu sem fór fram í Kristjánsborgarhöll og sat Dorrit í einu besta sætinu við hlið danska krónprinsins Friðriks, en gaf honum ekkert eftir í glæsileika er hann flutti ræðu til heiðurs móður sinnar á þremur tungumálum. Fjöldi kóngafólks og þjóðarleiðtoga var viðstaddur afmælið.
Mest lesið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Glænýr bóksölulisti: Ólafur Jóhann skákar Arnaldi Menning Fleiri fréttir Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Sjá meira