Stína er orðin tíu ára Magnús Guðmundsson skrifar 13. apríl 2015 10:30 Kormákur Bragason er verkstjóri í ritstjórn Stínu en hann hefur komið að útgáfunni frá upphafi.
Stína er merkilegt tímarit. Það kemur út tvisvar á ári og er án undantekninga stútfullt af áhugaverðu efni, umfjöllunum, sögum, ljóðum og fjölmörgu fleiru sem unnendur bókmennta og lista ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Ritstjórn Stínu skipa nú þau Guðbergur Bergsson, Kormákur Bragason, Kristín Ómarsdóttir, Hallgrímur Helgason og Kári Tulinius. Kormákur fer með verkstjórn innan ritstjórnarinnar og segir hann að það sé nú ekki breyting á Stínu á afmælisárinu. „Við erum þó að vinna í ákveðnum hlutum eins og að uppfæra vefsíðuna þar sem eru breytingar í undirbúningi. Þar er til að mynda ætlunin að bæta efni á erlendum tungumálum enda eru sífellt fleiri höfundar sem vilja skrifa á öðru tungumáli en íslensku, þá sérstaklega ensku. Sumir þessara höfunda eru íslenskir en það er mjög merkjanlegt hversu margir þeirra eru að leita út fyrir landsteinana. Það virðist nú ganga svona misvel, mjög vel hjá sumum en miður hjá öðrum, eins og gengur og gerist.“Kormákur segir að áskrifendum að Stínu hafi heldur fjölgað á síðustu árum og hafi ritstjórnin sett sér það markmið að þeir fylli fimmta hundraðið á árinu. „Við erum með áskrifendur sem hafa verið með okkur frá upphafi og svo hefur orðið aukning á áskrifendum erlendis, bæði Íslendingum og erlendum þýðendum, ásamt fleiri íslenskumælandi einstaklingum sem vilja fylgjast vel með því sem er á döfinni.“ „Það sem gleður okkur þó hvað mest er hversu margir vilja skrifa í Stínu. Fyrra eintak ársins er nýkomið út og við erum þegar búin að fylla seinna eintakið af efni. Við höfum frá upphafi lagt þá línu að vera opin fyrir ungum og nýjum höfundum sem eru að leitast við að koma sér á framfæri og það er mikilvægur þáttur í því sem við erum að gera. Svo erum við ekki eingöngu með bókmenntir, heldur er einnig fjallað um myndlist og leikhús reglulega svo dæmi sé tekið. Það er því af nógu að taka fyrir þá sem vilja fylgjast vel með í heimi bókmennta og lista með því að skella sér á áskrift að Stínu.“
Mest lesið „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Lífið Ein heitasta söngkona landsins á lausu Lífið Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Lífið Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Lífið Stjörnubarnið komið í heiminn Lífið Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Lífið Óþekkjanleg stjarna Bíó og sjónvarp Ástin sveif yfir ítölskum vötnum Lífið Devin Booker á Íslandi Lífið Skotheld og skemmtileg hlauparáð Lífið Fleiri fréttir „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Stjörnubarnið komið í heiminn Telja Ozzy endurfæddan sem Aquaman Skotheld og skemmtileg hlauparáð Devin Booker á Íslandi Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“ Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Robbie verður fimmtíu feta tröllkonan Ein heitasta söngkona landsins á lausu Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Gaf eistum kærastans gælunafn „Þetta hefur öfug áhrif og fólki líður bara verr“ Vera Illuga leiðir áhorfendur gegnum skilnað Ástin sveif yfir ítölskum vötnum Cosby Show-stjarna látin Pöntuðu „perrapizzu“ með flugi frá Ísafirði Heimsfræg lesbía á leið til landsins Stökk fjörutíu sinnum úr flugvél í Dubai Stjörnulífið: „Hann er pabbi minn“ „Ég vakna á hverjum degi og þrái ekkert meira en að fá hann aftur“ Ákváðu að vera um kyrrt á Englandi þegar Trump náði kjöri Millie Bobby Brown í hóp Íslandsvina Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Segir af sér eftir að Coldplay kom óvart upp um framhjáhaldið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Krakkatían: Barbie, forseti og flugstöð Charli xcx gifti sig „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Sjá meira
Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“