Veisla borðspilaáhugamannsins Sandra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar 11. apríl 2015 14:00 Svanhildur Eva Stefánsdóttir, eigandi Spilavina, á von á fjölda gesta í dag. Hér tekur hún í spil ásamt Lindu Rós Ragnarsdóttur, meðeiganda sínum, og Andra Þór Sturlusyni, starfsmanni í búðinni. vísir/ernir
Í dag er alþjóðlegi borðspiladagurinn haldinn um allan heim í þriðja sinn. Í tilefni af deginum blása Spilavinir til allsherjar veislu í húsakynnum sínum á Suðurlandsbraut. Þar verður spilað á tveimur hæðum á öllum borðum og starfsfólk verslunarinnar kennir gestum að spila allt milli himins og jarðar. Þá mætir einnig á staðinn kaffibarþjónn frá Reykjavík Roasters og býr til kaffi fyrir gesti. „Við vorum með þetta í fyrra líka,“ segir Svanhildur Eva Stefánsdóttir, annar eigenda Spilavina. „Þá mættu fleiri hundruð manns á öllum aldri, ömmur, afar, ungt fólk, krakkar og alveg heilu fjölskyldurnar saman.“ Svanhildur segir að að alþjóðlegi borðspiladagurinn hafi orðið til í framhaldi af því að borðspilamenning fer vaknandi í heiminum. Leikarinn Wil Wheaton úr Star Trek og Big Bang Theory er einn þeirra sem áttu þátt í að koma alþjóðlegum borðspiladegi á laggirnar. Hann heldur úti þáttaröð á netinu þar sem hann fær frægt fólk til að koma og kenna spil. Í fyrra voru haldnir þrjú þúsund viðburðir í áttatíu löndum í öllum heimsálfum. Viðburðirnir fara fram í spilabúðum, kaffihúsum, fyrirtækjum og jafnvel í heimahúsum en hægt er að skrá viðburði á vefsíðu borðspiladagsins tabletopday.com. Enn sem komið eru þrír viðburðir skráðir hér á landi en fyrir utan Spilavini, heldur Nexus einnig upp á daginn í annað sinn en þar verður einnig boðið upp á spilakennslu. Eins heldur Ísafold, Félag ungs fólks gegn ESB-aðild, upp á daginn með spilakvöldi sem hefst klukkan 20.00 og heldur áfram eins lengi og menn þola.
Mest lesið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Tala dýrsins 666 og Neró keisari Lífið Ellen verður að Dóru á ný Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Fleiri fréttir „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Sjá meira