Tækifæri til að taka sólarsjálfu Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 11. apríl 2015 13:30 Hér sést hluti af Kunstschlager-hópnum auk Svíanna sem opna sýningu í gömlu Blómastofunni. Vísir/Stefán
Listviðburðurinn Tropicalia: Listabonanza verður opnaður á Eiðistorgi í dag en viðburðurinn er haldinn af listamannarekna galleríinu Kunstschlager sem opnaði nýverið Kunstshlager-stofu í Hafnarhúsi. Hópurinn valdi staðsetninguna meðal annars vegna skrautlegra pálmatrjáa sem prýða verslunarkjarnann. „Við vorum orðin svolítið óþreyjufull að bíða eftir vorinu og búið að vera svo vont veður að við ákváðum að taka forskot á sæluna og halda upp á það inni,“ segir Helga Páley Friðþjófsdóttir, einn af meðlimum hópsins, og bætir hlæjandi við: „Það er alltaf hlýtt á Eiðistorgi og allavega ekki rok.“ Alls eru þátttakendur í sýningunni tuttugu og þrír og verða ýmiss konar listviðburðir á boðstólum fyrir gesti. Þar má meðal annars nefna myndlist, vídeóverk, tónlist og ljósmyndir. Sýningin verður sett upp á óhefðbundinn hátt og verkin staðsett víðs vegar um torgið. „Svo verða sólbekkir og skýjasæla, eða kandífloss eins og það er gjarnan kallað,“ segir Helga Páley hress. „Svo er þetta gott tækifæri til að skella í eina „selfie“ með pálamatrjám og marmara.“ Viðburðurinn hefst klukkan 15.00 og verður opinn fram eftir kvöldi. Einnig verður sýningin Of What Is Left opnuð klukkan 14.00 í gömlu Blómastofunni á Eiðistorgi en þar verða verk eftir Svíana Christinu Göthesson, Susanne Högdahl Holm, Joel Hurlburt og Ola Nilsson frá Studio 44.
Tengdar fréttir Kunstschlager á nýjum stað Listamannarekna galleríið Kunstschlager er í óðaönn að koma sér fyrir í Hafnarhúsi þar sem opnuð verður Kunstschlager stofa. Áður var hópurinn til húsa á Rauðarárstíg þar sem haldinn var fjöldi ólíkra sýninga. 16. mars 2015 13:30 Mest lesið Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Lífið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Lífið Ellen verður að Dóru á ný Lífið Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás Lífið Tala dýrsins 666 og Neró keisari Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Menning „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið Fleiri fréttir Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sjá meira
Kunstschlager á nýjum stað Listamannarekna galleríið Kunstschlager er í óðaönn að koma sér fyrir í Hafnarhúsi þar sem opnuð verður Kunstschlager stofa. Áður var hópurinn til húsa á Rauðarárstíg þar sem haldinn var fjöldi ólíkra sýninga. 16. mars 2015 13:30