Dútlar í fornbílum og syngur í hljóði Elín Albertsdóttir skrifar 4. apríl 2015 11:00 Óskar er búinn að fylla Hof á tvennum tónleikum í dag. Þann 3. maí verður hann í Hörpu ásamt bræðrum sínum og miðasala er langt komin. Það má því með sanni segja að þetta séu vinsælir bræður. Myndir/Auðunn Níelsson
Elsti bíllinn sem Óskar hefur gert upp er slökkviliðsbíll frá Akureyri en hann er jafngamall honum, 61 árs. Hann er núna til sýnis við slökkvistöðina í upprunalegu útliti,“ Óskar Pétursson, söngvari og einn Álftagerðisbræðra, gerir upp fornbíla á milli þess sem hann syngur í jarðarförum og heldur tónleika, ýmist einn eða með bræðrum sínum. Hann nýtur þess að skemmta fólki. Það hefur verið nóg að gera undanfarna daga hjá Óskari við að undirbúa tvenna tónleika sem verða í menningarhúsinu Hofi í dag. Tilhlökkun og spenna í loftinu, enda Óskar búinn að fylla húsið. Það var létt yfir tenórnum þegar við slógum á þráðinn til hans. „Ég var beðinn um það upphaflega að vera með páskatónleika í Hofi þegar húsið var nýtt. Það var vilji að fá heimamann til að koma fram í húsinu,“ segir Óskar, sem er alinn upp í Skagafirði en hefur búið á Akureyri í rúmlega 40 ár. Tónleikarnir eru til heiðurs Gunnari Þórðarsyni sem verður hljómsveitarstjóri. Meðal þeirra sem fram koma eru Egill Ólafsson, dúettinn Þú og ég, skipaður Jóhanni Helgasyni og Helgu Möller, Harpa Birgisdóttir og Hjalti Jónsson. Óskar hefur haldið tónleika í Hofi um páska á hverju ári síðan húsið var opnað svo þetta er árlegur viðburður. „Gunni Þórðar hefur alltaf verið með mér á þessum tónleikum en ég ákvað fyrir löngu að heiðra höfðingjann með lögum eftir hann núna. Ég var langt á undan þeim fyrir sunnan að stinga upp á heiðurstónleikum,“ segir Óskar og hlær.Gamall gullmoli Óskar er bifvélavirki að mennt og hefur löngum starfað við fagið. Hann segist skipta vinnutíma sínum til helminga: 50% er söngur og 50% gerir hann upp gamla bíla. „Ég er ekki lengur að gera við bíla heldur geri ég upp öldunga. Ég safna fornbílum sjálfur og geri upp fyrir aðra. Gömul ökutæki hafa alltaf verið mér hugleikin. Núna er ég að gera upp 45 ára gamlan Land Rover úr Skagafirði sem er búinn að vera ónýtur lengi. Hann á eftir að verða mikill gullmoli. Ég er líka að gera upp gamlan traktor fyrir bónda í Skagafirði. Elsti bíllinn sem ég hef gert upp er slökkviliðsbíll frá Akureyri en hann er jafngamall mér, 61 árs. Hann er núna til sýnis við slökkvistöðina í upprunalegu útliti,“ segir Óskar sem hefur gert upp marga fornbíla. „Maður er hálf ruglaður að þessu leyti,“ segir hann og bætir við að hann vilji alltaf vita sögu þess bíls sem hann gerir upp. „Helst vil ég líka hafa þá úr heimabyggð.“Lík og gamalmenni Óskar er ættaður úr Skagafirði og segist oft koma þangað. Þegar hann er spurður hvort hann eigi sumarhús þar, svarar hann: „Söngvari og bifvélavirki hefur ekki efni á sumarbústað. Starfið er mitt áhugamál og svo nýt ég þess að vera með fjölskyldunni. Meira þarf ég ekki,“ segir Óskar, sem er kvæntur Jónínu Sveinbjörnsdóttir en þau eiga þrjú börn og þrjú barnabörn. „Verst er að tvö barnabörnin eru búsett í Danmörku.“ Hinn 3. maí verða Álftagerðisbræður með tónleika í Eldborgarsal Hörpu og hlakkar Óskar mikið til þess að koma suður. Bræður hans, Sigfús, Pétur og Gísli, koma mest fram saman eða með kórum. Óskar er sá eini sem er með eigin tónleika. „Ég held að við séum að verða búnir að fylla kofann,“ segir hann. „Annars var einn grínisti sem sagði að okkar helstu aðdáendur væru lík og gamalmenni,“ segir Óskar og skellir upp úr en það deyr varla nokkur maður fyrir norðan án þess að Óskar sé fenginn til að syngja yfir honum. Hann segist vera bókaður langt fram í tímann í jarðarfarir, það eigi bara stundum eftir að dagsetja bókunina.Einrænn með köflum Óskar er þekktur húmoristi og aldrei langt í sprellið hjá honum. Hann viðurkennir að stundum sé hann glannalegur í orðum. „Þess vegna er oft gert grín að mér en ég er ekkert viðkvæmur fyrir því. Menn þurfa að ná sér niðri á mér. Ég hef gaman af því að segja sögur og láta fólk hlæja og skemmta sér. Það er nauðsynlegt að hafa létt andrúmsloft í kringum sig.“En áttu ekki erfiða daga eins og aðrir? „Jú, jú, ég er ekki alltaf í stuði. Ég er í rauninni frekar einrænn. Mér finnst gott að dútla í bílunum þegar ég er í þannig skapi.“ Syngurðu yfir bílunum? „Nei, það geri ég aldrei og ekki heldur í sturtu. Áður fyrr var ég sígalandi en er löngu hættur því. Ég get æft söng í huganum. Það snerist allt um söng þegar ég var að alast upp. Annað hvort var talað um hesta eða söng þannig að umræður á æskuheimilinu voru einhæfar,“ segir hann. Óskar er yngstur bræðra sinna og segir þá eldri vera farna að reskjast. Þess vegna séu þeir farnir að draga sig nokkuð í hlé. Hann segir plötu ekki á döfinni. „Eru þær ekki deyjandi fyrirbæri?“ spyr hann.Lögin í Sjallanum Um páskana ætlar Óskar að njóta fjölskyldunnar þegar tónleikarnir eru að baki. „Eftir páskana er ég síðan fullbókaður í jarðarförum. Ég þekki oft þá sem er verið að jarðsetja og það gefur mér mikið að kveðja þá með fallegum söng.“ Þegar hann er spurður hvaða lög sé mest beðið um í jarðarförum segir hann lagaflóruna vera breiða. „Rósin er alltaf mjög vinsæl, sömuleiðis Liljan en svo er mikið beðið um dægurlög eins og Vor í Vaglaskógi, Ég er kominn heim og fleiri slík. Þetta eru lög sem menn heyrðu í Sjallanum í gamla daga,“ segir tenórinn vinsæli sem segist vera með nokkur fiðrildi í maganum vegna tónleikanna í dag en ekki síður tilhlökkun.
Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Lífið Fleiri fréttir Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Sjá meira