Fékk Swarovski-steina frá Sonia Rykiel 13. apríl 2015 08:30 Manuela Ósk Harðardóttir fatahönnunarnemi. Visir/Ingrid Karis
Fatahönnunarsýning annars árs nema í Listaháskólanum fór fram á fimmtudagskvöld. Sýningin, sem fór fram í Hörpu, var einstaklega glæsileg, en hún er afrakstur fimm vikna námskeiðs fatahönnunarbrautar. „Þetta var alveg geðveikt. Mikil vinna og margar svefnlausar nætur, en alveg þess virði,“ segir Manuela Ósk Harðardóttir. Línan hennar var einkar glæsileg og segist hún hafa fengið góða hjálp frá utanaðkomandi aðilum. Jakkinn sem Manuela gerði er einstaklega veglegur og töff. mynd/Hörður Ásbjörnsson„Eggert feldskeri hjálpaði mér mikið og hann á mikið þakklæti skilið, en ég gerði bomberjakka þar sem ermarnar voru úr feld sem hann aðstoðaði mig við að gera. Einnig aðstoðaði Selma Ragnars klæðskeri mig mikið,“ segir hún. Annað efni í línuna segist hún hafa keypt í París og New York á ferðalögum sínum þangað, meðal annars sérstaklega meðhöndlað nautsleður. Henni barst svo óvæntur glaðningur frá vinum sínum í París. „Ég kom heim einn daginn og þá höfðu þau hjá Sonia Rykiel sent mér nokkur æðisleg efni og fullt af Swarovski-steinum sem var ótrúlega sætt af þeim,“ segir Manuela en hún hefur undanfarið ár verið aðstoðarkona hjá þeim yfir tískuvikurnar. Manuela segist ekki ætla að selja línuna sína. „Það er ekki mælt með því. Það er svo ótrúlega mikilvægt fyrir okkur að eiga og geta sýnt hvað við vorum að búa til. Hins vegar passa ég í flest fötin, þannig að ég kannski nota þau við gott tilefni,“ segir hún og hlær.Sóley Jóhannsdóttir fatahönnunarnemi.„Það var aðalvinnan hjá mér að sauma rétt saman. Það er ekkert grín að blanda saman stífum efnum og svo léttari efnum eins og silkinu,“ segir Sóley Jóhannsdóttir. Hennar lína einkenndist af minimalískri grafík. Efnin pantaði hún frá Englandi, sem hún segir að hafi verið mun ódýrara en að kaupa þau hér heima. „Það er hægara sagt en gert að fá góð efni hér heima á góðu verði, en ég vann með bambussilki og bómull. Ég litaði græna efnið í vél, en það hvíta litaði ég með tei til þess að fá þennan off-white lit,“ segir hún. Sóley segist hafa saumað alla línuna sjálf, með örlítilli hjálp frá ömmu sinni.
Mest lesið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Sjá meira