Í sparifötin á afmælistónleikum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 25. apríl 2015 10:15 Þessi mynd er tekin á jólatónleikum og hér eru kórkonur ekki komnar í nýju kjólana. „
Á svona hátíðartónleikum finnst okkur við hæfi að fara í sparifötin og við ætlum að klæðast glæsilegum, nýjum kórkjólum sem hannaðir voru af Snædísi Guðmundsdóttur hjá Dís,“ segir Sigríður Þyrí Skúladóttir, formaður Kvennakórs Hafnarfjarðar. Kórinn heldur tvenna tónleika nú á vordögum og fagnar um leið tuttugu ára starfsafmæli á þessu ári. Fyrri tónleikarnir verða í Hamarssal Flensborgarskólans í Hafnarfirði á morgun, 26. apríl, og hefjast klukkan 16 en þeir síðari verða í Fella- og Hólakirkju laugardaginn 2. maí og hefjast klukkan 15. „Við ætlum að líta yfir farinn veg og rifja upp fjölmörg falleg lög frá liðnum árum, lög sem hafa öðlast sérstakan sess í hjörtum okkur kórkvenna á tuttugu ára starfsævi kórsins. Einnig ætlum við að frumflytja lag Þóru Marteinsdóttur við ljóð eftir Örn Árnason, það var samið sérstaklega fyrir kórinn í tilefni afmælisins,“ upplýsir Sigríður Þyrí. Tveir hafnfirskir listamenn, þau Margrét Eir og Páll Rósinkrans, syngja með kórnum á tónleikunum en hljóðfæraleikarar verða Antonía Hevesi á píanó, Jón Rafnsson á kontrabassa og Kristrún Helga Björnsdóttir á flautu. Stjórnandi kórsins er Erna Guðmundsdóttir. Sigríður Þyrí tekur fram að tónleikagestum verði boðið að þiggja afmæliskaffi og konfekt í hléinu. Miðar eru seldir í forsölu á 2.500 krónur hjá kórkonum. Miðaverð við innganginn er 3.000 krónur en frítt er fyrir börn yngri en 12 ára.
Mest lesið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Lífið „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Plokkað af krafti með forsetamaka Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Fleiri fréttir GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Sjá meira