Innlent

Illugi segist ekki hafa neitt meira til að upplýsa

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Mennta- og menningarmálaráðherra svarar ekki spurningum Ísland í dag um 1,2 milljóna króna greiðslur til OG Capital árið 2012.
Mennta- og menningarmálaráðherra svarar ekki spurningum Ísland í dag um 1,2 milljóna króna greiðslur til OG Capital árið 2012. vísir/anton
Illugi Gunnarsson, mennta og menningarmálaráðherra, segir ekkert eftir til að opinbera eða svara um tekjur sínar frá Orku Energy. Þetta segir hann í skriflegu svari til Ísland í dag.

„Ég hef nú opinberað allt sem hægt er að opinbera um tekjur mínar og reyndar líka Brynhildar konunnar minnar, á þessum árum. Það er ekkert eftir til að opinbera eða svara,“ skrifar ráðherrann í svari sem sent var í gegnum aðstoðarmann hans, Sigríði Hallgrímsdóttur.

Milljóna tekjur frá Orku Energy

Fyrir liggur að Illugi fékk 5,6 milljónir í laun frá félaginu árið 2012 en það eru laun sem hann segir að hafi verið vegna vinnu árið 2011. Þau koma fram á skattskýrslu hans sem Illugi birti á Facebook síðu sinni á miðvikudag en eftir skatta og gjöld nam greiðslan 2,95 milljónum króna.

Samkvæmt launaseðli sem hann afhenti í beinni útsendingu á Stöð 2 eru launin þó skráð fyrirfram. Í samtali við RÚV hefur hann þó sagt að um eftirágreidd laun séu að ræða; bókhaldslegar ástæður hjá Orku skýri skráningu greiðslunnar sem fyrirframgreidd laun.

Svarar ekki spurningunum

Tvær spurningar voru sendar ráðherranum um 1,2 milljóna króna tekjur félagsins OG Capital árið 2012: Hvað var selt fyrir 1,2 milljónir króna og hver keypti fyrir 1,2 milljónir króna. Hvorugri spurningunni var þó svarað.

Illugi segir þó í póstinum að hann hafi ekki fengið laun eða arð frá einkahlutafélaginu OG Capital, sem hann átti allt til ársins 2013, sem hafi átt uppruna sinn hjá Orku Energy.

„Ég hef birt og gert grein fyrir öllum upplýsingum er varða tekjur mínar vegna ráðgjafarstarfa fyrir Orku Energy.  Eins og skattskýrslur mínar og eiginkonu minnar frá árunum 2012 og 2013 sýna, er einungis um eina launagreiðslu að ræða frá Orku Energy,“ segir hann. „Þetta eru einu tekjurnar sem ég hef haft frá Orku Energy fyrr og síðar.“

Vegna fréttar Stundarinnar frá því í dag, sem byggð er á ónafngreindum heimildarmanni, hef ég ákveðið að stíga það skref...

Posted by Illugi Gunnarsson on Wednesday, October 14, 2015
Óútskýrð milljón

Illugi hefur hins vegar ekki svarað annarri fyrirspurn sem Vísir sendi ráðherranum og aðstoðarmanni hans í gær um tekjur OG Capital árið 2012, sem í grunninn eru samskonar spurningar og Ísland í dag sendi.

Fyrir liggur, samkvæmt ársreikningi, að félagið fékk greiddar 1,2 milljónir króna og að það greiddi kostnað upp á um 100 þúsund krónur fyrir Illuga og endurgreiddi 400 þúsund króna eigendalán til baka.

Árið 2012 fékk því Illugi 500 þúsund króna greiðslur úr félaginu.

Illugi hefur ekki viljað útskýra hvaðan þeir peningar eru komnir en Stundin segist hafa heimildir fyrir því að Orka Energy sé á bak við áðurnefnda 1,2 milljóna króna greiðslu til OG Capital árið 2012.

Hvað OG Capital varðar, þá fékk ég engin laun eða arð frá því félagi, hvorki fyrr né síðar, sem áttu uppruna sinn hjá Orku Energy,“ segir Illugi hins vegar í svarinu en upplýsir ekki um hvaðan peningarnir sem sannarlega fóru inn í félagið komu.

Ósvaraðar spurningar

Eins og áður segir óskaði Vísir í gær eftir svörum við þremur spurningum er varða greiðslur til OG Capital árið 2012. Engin viðbrögð hafa fengist frá Illuga eða Sigríði aðstoðarmanni hans, en spurningarnar voru ítrekaðar í morgun og fylgt eftir með smáskilaboðum í síma Illuga.

Spurningarnar eru eftirfarandi:

  • Frá hverjum eru greiðslur sem félagið OG Capital fékk árið 2012?
  • Árið 2012, samkvæmt ársreikningi, greiddi félagið eiganda félagsins, sem varst þú á þeim tíma, til baka eigendalán. Þá greiddi félagið einnig fyrir kostnað upp á rúmlega 100 þúsund krónur. Eru þetta ekki peningar sem voru tilkomnir vegna verkefna sem þú vannst fyrir Orku Energy?
  • Hverjar eru heildargreiðslur sem komið hafa frá Orku Energy til þín og eða félaga þér tengdum, s.s. OG Capital?
Þá hefur Vísir einnig óskað eftir að fá að sjá kvittun fyrir leigugreiðslum fyrir íbúðina á Ránargötu og leigusamninginn um sömu íbúð. Illugi segist greiða 230 þúsund krónur í leigu á mánuði, sem passar við tekjur OG Capital samkvæmt síðasta birta ársreikningi.

Engum leigusamningi hefur þó verið þinglýst en ef það hefði verið gert væri samningurinn opinber.

Í gær skýrði ég frá því að við hjónin gátum ekki haldið íbúð okkar eftir nokkur fjárhagsleg áföll sem á okkur dundu...

Posted by Illugi Gunnarsson on Monday, April 27, 2015
Sextán spurningar til viðbótar í þinginu

Til viðbótar við spurningar fjölmiðla hafa þrír stjórnarandstöðuþingmenn, þær Svandís SvavarsdóttirBirgitta Jónsdóttir og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, óskað eftir svörum frá Illuga um tengsl við Orku og vinnuferð sem hann fór með fulltrúum fyrirtækisins til Kína þann 20. mars árið 2014. 

Kínaferðin hefur verið gagnrýnd harðlega eftir að í ljós kom að Haukur Harðarson, stjórnarformaður Orku Energy og einn eigenda fyrirtækisins, hafði komið Illuga til aðstoðar árið 2013, þegar hann segist hafa verið í fjárhagslegum erfiðleikum, og losaði hann undan tugmilljóna skuldum sem hvíldu á íbúð hans við Ránargötu. 

Það gerði Haukur með því að kaupa félagið OG Capital sem var orðinn eigandi íbúðarinnar, og skuldanna sem á henni hvíldu, árið 2013, eftir að Illugi hafði þá selt félaginu íbúðina, á meðan það var enn í hans eigu.

Samtals eru það sextán spurningar sem lagðar hafa verið fyrir ráðherrann á þingi en samkvæmt þingsköpum hefur hann 15 virka daga til að svara spurningunum. Fyrstu tvær fyrirspurnirnar voru lagðar fram á þingi þann 8. október síðastliðinn og hefur hann  til 29. næstkomandi til að svara.


Tengdar fréttir

Launaseðill Illuga frá Orku Energy birtur

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra fékk 5,6 milljónir króna í laun frá Orku Energy í febrúar 2012. Tæplega 2.950.000 kr. voru vegna fyrirframgreiddra launa. Um var að ræða uppgjör vegna launa á árinu 2011, að sögn Illuga.

Orku Energy ferðin sú fyrsta sinnar tegundar

Menntamálaráðherra hefur ekki farið aðrar utanlandsferðir til að greiða götur íslenskra fyrirtækja en þá sem hann fór í til Kína með Orku Energy. Segir tugi vísindamanna og sérfræðinga fengið störf í Kína vegna verkefna fyrirtækisins þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×