Óboðleg aðgerð Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. september 2015 11:00 Tímabilið 2006-2010. þegar þrír meirihlutar störfuðu á einu kjörtímabili, var hörmungartímabil í sögu borgarstjórnar Reykjavíkur. Miðað við allt sem á gekk þau árin, má kannski segja að það hafi verið afrek hjá meirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar að ná að starfa saman heilt kjörtímabil. Og nú er tæpt eitt og hálft ár liðið frá því að meirihlutasamstarf Bjartrar framtíðar, Samfylkingarinnar, VG og Pírata hófst og hefur sá tími liðið nokkuð stóráfallalaust. En þrátt fyrir friðartíma í Ráðhúsinu verður vart sagt að þar sé stjórnsýslan til fyrirmyndar. Þau tíðindi að borgarstjórnarmeirihlutinn hafi samþykkt tillögu Bjarkar Vilhelmsdóttur um að sniðganga vörur frá Ísrael, bendir reyndar til að öðru sé nær. Það er ekkert sérstakt heilbrigðismerki að tillögur séu samþykktar af virðingu við fráfarandi borgarfulltrúa, en ekki með hagsmuni borgarbúa að leiðarljósi. Hvað þá ef það er gert af gamalli hefð. Hlutverk sveitarstjórna er ekki skýrt skilgreint í sveitarstjórnarlögum. Þar segir þó í 8. grein að sveitarstjórn skuli sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum sveitarfélags. Svo segir að sveitarstjórnin geti ályktað um hvert það málefni sem hún telji að varði sveitarfélagið. Þessa reglu má túlka sem svo að sveitarstjórn beri að sjá til þess að skyldur sveitarfélaga á borð við rekstur leikskóla, grunnskóla eða annarrar grunnþjónustu séu ræktar. Og satt að segja virðast flest sveitarfélög og sveitastjórnir eiga fullt í fangi með að sinna verkefnum sínum án þess að öðrum sé bætt við. Borgarstjórn hafði ekki samráð við nokkurn aðila um ákvörðun sína um sniðgönguna. Ekkert samráð var haft við utanríkisráðherra, sem sannarlega ber ábyrgð á framkvæmd utanríkisstefnunnar. Og það má alveg taka undir með Pétri Dam Leifssyni, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, sem segir að ákvörðun borgarstjórnar veki spurningar um samstarf ríkis og sveitarfélaga. „Það kunna þá undir vissum kringumstæðum að vakna spurningar um það hvort ríkinu finnist sveitarfélagið mögulega vera að feta brautir sem nálgast valdmörk ríkis og sveitarfélaga,“ sagði Pétur í samtali við Fréttablaðið. Borgarfulltrúar höfðu heldur ekkert samráð haft við aðila úr atvinnulífinu, sem hugsanlega kynnu að bera skaða af ákvörðuninni. Skaðinn virðist nú vera orðinn staðreynd, hvort sem hann er langvarandi eða einungis til skamms tíma. Framleiðendur greina frá því að vörur þeirra hafi verið teknar úr hillum erlendis og ferðaþjónustufyrirtæki greina frá því að ferðir hingað til lands hafi verið afbókaðar. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra lýsti áhyggjum sínum af því að ákvörðun borgarstjórnar kynni að brjóta í bága við lög um opinber innkaup fyrirtækja. En í 7. grein laganna, sem er nokkuð skýr, segir: „Gæta skal jafnræðis og gagnsæis við opinber innkaup. Óheimilt er að mismuna fyrirtækjum á grundvelli þjóðernis eða af öðrum sambærilegum ástæðum.“ Með allt fyrrgreint til hliðsjónar verður vart komist að annarri niðurstöðu en að ákvörðun borgarstjórnar um að sniðganga ísraelskar vörur hafi fyrst og fremst borið vott um arfaslaka stjórnsýslu. Borgarstjóri hefur reyndar viðurkennt að málið hafi verið illa útfært og dregið tillöguna til baka. Ein leiðin til að bera ábyrgð á mistökunum er að læra af þeim. Sinna betur þeim verkefnum sem undir borgina heyra, en láta aðra um utanríkismálin. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Gunnar Rögnvaldsson Skoðun Landskjörstjórn gerir athugasemd við spurninguna Erna Bjarnadóttir Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Norsk Óskarsverðlaun og íslensk kreppa Sveinbjörn I. Baldvinsson Skoðun Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Börnin í Hveragerði Þorsteinn Hjartarson,Birgitta Ragnarsdóttir Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson Skoðun „Dæmisögur Jesú“—Líf sem ber hundraðfaldan ávöxt. Sigurvin Lárus Jónsson Skoðun Þróun orðræðu um dauðann í íslenskri menningu Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Gunnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Landskjörstjórn gerir athugasemd við spurninguna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Börnin í Hveragerði Þorsteinn Hjartarson,Birgitta Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „Dæmisögur Jesú“—Líf sem ber hundraðfaldan ávöxt. Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Norsk Óskarsverðlaun og íslensk kreppa Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifar Skoðun Þróun orðræðu um dauðann í íslenskri menningu Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði skrifar Skoðun Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tryggjum fæðu- og eldsneytisöryggi með uppbyggingu á Dysnesi Pétur Ólafsson skrifar Skoðun Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Nýtt Álftanes á einu kjörtímabili Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Gagnsæi í ákvarðanatöku Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun í breyttri heimsmynd Erna Björnsdóttir skrifar Skoðun Rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi þarf að heyrast Auður Halla Rögnvaldsdóttir skrifar Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir skrifar Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Rúllum út rauða dreglinum Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Með svipuna á bakinu Rannveig Eyja Árnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar