Anton og Jónas gáfu Nikola Karabatic rautt og bróður hans tvær mínútur fyrir leikaraskap Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. október 2015 11:30
Paris Saint-Germain vann MVM Veszprém, 29-27, í risaslag í A-riðli Meistaradeildarinnar í handbolta í gærkvöldi. Þetta var fyrsta tap Aron Pálmarssonar og félaga í Veszprém á þessari leiktíð í Meistaradeildinni og jafnframt fyrsti sigur PSG á Vezprém. PSG var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 16-12, en undir forystu Arons Pálmarssonar jafnaði Veszprém leikinn í 22-22 í seinni hálfleik. PSG var þó sterkara á lokasprettinum og innsiglaði góðan sigur.Sjá einnig:Aron sýndi að hann er einn sá besti | Sjáðu mörkin og stoðsendingarnar PSG spilaði síðustu 15 mínútur leiksins án besta handboltamanns heims, Nikola Karabatic, en hann fékk beint rautt spjald frá íslenskum dómurum leiksins; Antoni Gylfa Pálssyni og Jónasi Elíassyni. Karabatic gat ekkert kvartað enda sló hann Ivan Sliskovic, skyttu Veszprém, beint í andlitið. Bróðir Nikola, Luka Karabatic, sem er einn besti varnarmaður heims og varð heimsmeistari með Frökkum í Katar fyrr á þessu ári ásamt bróður sínum, kom sér líka í vandræði hjá íslensku dómurunum. Leikmenn PSG fengu almenna viðvörun um miðbik fyrri hálfleiks fyrir að láta sig falla of auðveldlega í varnarleiknum þegar þeir voru að reyna að fiska ruðning. Aðeins tíu sekúndum eftir þá viðvörun henti Luka Karabatic sér í gólfið og fékk tveggja mínútna brottrekstur frá Antoni og Jónasi. Þessa tvo dóma Antons og Jónasar má sjá í spilaranum hér að ofan.
Handbolti Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Eyjakonur juku á raunir HK Handbolti Fleiri fréttir FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Sjá meira