Barn hlaut annars stigs brunasár í slysi við Geysi Jóhann Óli Eiðsson skrifar 18. júní 2015 14:27 Myndbandið sýnir glöggt hvernig vatnið skvettist yfir fólkið og viðbrögð þeirra eru auðgreinanleg. myndir/úr myndbandi péturs
Slys varð við Strokk á Geysissvæðinu í Haukadal síðastliðin mánudag. Tvö börn hlutu fyrsta og annars stigs brunasár á fótum í kjölfar þess að vindhviða feykti vatni úr hvernum yfir þau. Börnin voru á ferð um landið með fjölskyldu sinni en fjölskyldan er búsett í Noregi. Pétur Reynisson, faðir barnanna, var með myndavélina á lofti og náði atvikinu á myndband en myndskeiðið má sjá hér að neðan. Börnin voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur þar sem meiðsl þeirra voru meðhöndluð.Sjá einnig: Slys á Geysissvæðinu „Ég vil þakka af alhug öllum þeim sem að brugðust gríðralega hratt við atvikinu. Starfsmönnum í ferðamannabúðinni, viðbragðsteymi sem var á svæðinu, sjúkrafólki frá Selfossi sem kom fljótt á staðinn og einnig þyrluteymi frá Landhelgisgæslunnar sem var þarna í nágrenninu. Þeir tóku ákvörðun um að lenda, kanna umfang atviksins og flugu með börnin okkar á Landspítalann,“ segir Pétur. „Sem betur fer gerist þetta mjög sjaldan,“ segir Garðar Eiríksson, talsmaður Landeigendafélagsins Geysir ehf. Í fyrra hóf félagið gjaldtöku við goshverinn en lögbann var lagt á hana af sýslumanni. Sú niðurstaða var staðfest í héraðsdómi. „Við höfum lagt áherslu á það að við viljum bæta umgjörð og öryggismál í samræmi við aukinn fjölda gesta sem heimsækir svæðið. Minnihlutaeigandinn, það er ríkið, er ekki sammála okkur og því fer sem fer. Meðan svona er staðið að málum má búast við því að eitthvað berði út af. Meðan okkur er meinað að afla fjár er ekki hægt að standa betur að málunum,“ segir Garðar.Sjá einnig: Gjaldtaka hafin við Geysi Í síðasta mánuði var tilkynnt um að ríkisstjórnin hyggðist verja 850 milljónum til verkefna á fjölförnum ferðamannastöðum. Af þeim peningum renna fimmtíu milljónir til Geysissvæðisisins. „Við vitum ekkert um þennan pening. Af okkar hálfu höfum við lengi kallað eftir samráði en það hefur ekki verið hlustað. Uppbyggingin sem við stefnum að kostar á bilinu sex til áttahundruð milljónir og það er líklega vanmat. Að auki verður að gera ráð fyrir árlegum kostnaði vegna fleiri starfa við að vakta svæðið betur og auka gæslu. Það er kostnaður sem nemur ábyggilega hátt í hundrað milljónum á ári,“ segir Garðar.Sjá einnig: Staðfesti lögbann við gjaldtöku á Geysi Hann bendir á að úthlutunin og kostnaðurinn við hana þýðir að hver landsmaður þurfi að greiða auka þúsundir króna á meðan ferðaþjónustufyrirtækin og ferðamennirnir greiði ekki eyri. „Hvað ætlum við að gera eftir nokkur ár þegar fjöldi ferðamanna á ári er orðinn tvær milljónir? Ætlum við að halda þessu áfram og skera niður í grunnþjónustu á móti?“ „Við höfum reynt að slást við meðeiganda okkar en hann beytir okkur einfaldlega því ofbeldi sem hann ræður yfir. Meðan menn ná ekki saman þá getum við lítið gert. Það að bæta öryggi gesta og umgjörð kostar fé sem við höfum ekki sem stendur,“ segir Garðar að lokum.
Tengdar fréttir Áskilja sér rétt til að stöðva gjaldheimtu við Geysi Lögmannsstofan Landslög hefur sent Landeigendafélags Geysis ehf. bréf þar sem fyrri mótmæli ríkisins og andstaða eru ítrekuð vegna ætlunar félagsins að innheimta gjald af ferðamönnum sem fara um svæðið. 13. febrúar 2014 18:28 Ferðamönnum finnst of margir hópferðamenn við Geysi og Jökulsárlón Erlendir ferðamenn eru um 92% þeirra sem sækja heim átta af helstu kennileitum íslenskrar náttúru. 23. mars 2015 14:59 Landeigendur við Geysi halda fast í áform um gjaldtöku Landeigendur við Geysi segja álit umhverfis- og auðlindaráðuneytis um að gjaldheimta Landeigendafélagsins við Geysi yrði ólögleg ekki breyta neinu um þeirra afstöðu. 16. janúar 2014 12:57 Geysir gæti komið í leitirnar hefjist gos í Bárðarbungu "Ég tel fremur litlar líkur á að gos verði nú innan öskju Bárðarbungu, en ef svo verður, þá er ekki útilokað að flakið af flugvélinni Geysir komi aftur fram í dagsljósið.“ 18. september 2014 09:09 Ríkið með lögbannið til dómstóla Helstu hverir svæðisins, Geysir, Strokkur og Blesi á svæði sem er séreign ríkisins. 14. mars 2014 14:21 Mest lesið „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Erlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Fleiri fréttir Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Sjá meira
Áskilja sér rétt til að stöðva gjaldheimtu við Geysi Lögmannsstofan Landslög hefur sent Landeigendafélags Geysis ehf. bréf þar sem fyrri mótmæli ríkisins og andstaða eru ítrekuð vegna ætlunar félagsins að innheimta gjald af ferðamönnum sem fara um svæðið. 13. febrúar 2014 18:28
Ferðamönnum finnst of margir hópferðamenn við Geysi og Jökulsárlón Erlendir ferðamenn eru um 92% þeirra sem sækja heim átta af helstu kennileitum íslenskrar náttúru. 23. mars 2015 14:59
Landeigendur við Geysi halda fast í áform um gjaldtöku Landeigendur við Geysi segja álit umhverfis- og auðlindaráðuneytis um að gjaldheimta Landeigendafélagsins við Geysi yrði ólögleg ekki breyta neinu um þeirra afstöðu. 16. janúar 2014 12:57
Geysir gæti komið í leitirnar hefjist gos í Bárðarbungu "Ég tel fremur litlar líkur á að gos verði nú innan öskju Bárðarbungu, en ef svo verður, þá er ekki útilokað að flakið af flugvélinni Geysir komi aftur fram í dagsljósið.“ 18. september 2014 09:09
Ríkið með lögbannið til dómstóla Helstu hverir svæðisins, Geysir, Strokkur og Blesi á svæði sem er séreign ríkisins. 14. mars 2014 14:21