Strákarnir okkar allir mættir til Kölnar Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. maí 2015 18:49 Aron Pálmarsson, Guðjón Valur Sigurðsson og Alfreð Gíslason eru mættir til Kölnar. mynd/efhcl
Öll liðin fjögur sem taka þátt í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar í handbolta; Kiel, Barcelona, Kielce og Veszrpém, eru mætt til Kölnar í Þýskalandi þar sem Final Four fer fram sjötta árið í röð. Í fyrri undanúrslitaleiknum mætir Barcelona liðið Kielce, en útsending hefst á Stöð 2 Sport klukkan 13.10 á laugardaginn. Seinni undanúrslitaleikurinn er viðureign Kiel og Veszprém frá Ungverjalandi, en útsending frá honum hefst klukkan 15.50 á Stöð 2 Sport 3. Barcelona-liðið mætti fyrst til Kölnar, en á Facebook-síðu Meistaradeildarinnar má sjá myndir af liðunum mæta á hótelið þar sem þau gista. Guðjón Valur var einbeittur á svip enda ætlar hann sér að bæta Meistaradeildartitlinum í sarpinn. Hann hefur fjórum sinnum komist í undanúrslit en aldrei unnið. Alfreð Gíslason, Aron Pálmarsson og strákarnir í Þýskalandsmeistaraliði Kiel voru síðastir til Kölnar þrátt fyrir að vera eina þýska liðið í undanúrslitunum. Flugi Kiel seinkaði en nú eru allir mættir á staðinn og klárir í slaginn á laugardaginn. Alfreð Gíslason hefur tvisvar sinnum unnið Meistaradeildina eftir að byrjað var að spila með Final Four-fyrirkomulaginu og vonast eftir sínum þriðja titli með Kiel í Köln um helgina. Alls hefur hann unnið Meistaradeildina sem þjálfari fjórum sinnum.Alfreð G'islason nær í töskuna úr rútunni.mynd/efhclGuðjón Valur í Jay Leno-gallanum í Köln og klár í slaginn.mynd/efhclAron Pálmarsson með Christian Sprenger og Marko Vujin.mynd/efhclSigurvegarinn fær þennan bikar.mynd/efhcl
Handbolti Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Ken Bates látinn Enski boltinn Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira