Hafa fundið leið í átt að samkomulagi um ESB-aðild Breta Atli Ísleifsson skrifar 18. desember 2015 08:27 David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. Vísir/AFP
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir að leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins hafi fundið leið til að feta í átt að samkomulagi um ESB-aðild Bretlands. Hann segir að „góður árangur“ hafi náðst á leiðtogafundinum í Brussel, en að mikil vinna bíði til að hægt sé að ná endanlegu samkomulagi áður en settur frestur rennur út í febrúar. Cameron hefur farið fram á að breytingar verði gerðar á fjórum sviðum, meðal annar að bætur til verkamanna frá öðrum aðildarríkjum ESB sem starfa í Bretland verði skertar í fjögur ár.Í frétt BBC kemur fram að Angela Merkel Þýskalandskanslari segi að allir leiðtogar aðildarríkjanna vilji sjá málamiðlun. Cameron vill ná samkomulagi um breytingar á ESB-aðild Bretlands, áður en þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um hvort Bretar eigi að segja skilið við sambandið eður ei. Atkvæðagreiðslan á að fara fram í síðasta lagi fyrir árslok 2017. Auk bótaskerðinga erlends verkafólks, fer Cameron fram á vernd þeirra ESB-ríkja sem standa utan evrusamstarfsins í fjárhagslegum málum, að ráðist verði í aðgerðir til að auka samkeppnishæfni og undanþágu fyrir Bretland frá ákvæði sáttmála sambandsins um að sækjast að stöðugt nánari samruna innan sambandsins. ESB-aðild Breta var ásamt öðrum málum til umræðu á kvöldverðarboði leiðtoga ESB-ríkja í Brussel í gærkvöldi. Fréttaritari BBC segir að líkur væru á að aðildarríkin myndu koma sér saman um lagalega bindandi samning varðandi aðild Breta.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira