Fíkniefnaverksmiðjan sú háþróaðasta í Evrópu sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 11. október 2015 21:12 Frá vöruskemmunni. MYND/SPÆNSKA ÞJÓÐVARNARLIÐIÐ
Fíkniefnaverksmiðjan sem spænska lögreglan lokaði á dögunum er ein sú háþróaðasta í Evrópu. Hún er metin á um eina milljón evra, eða rúmlega 140 milljónir króna. Í henni fundust hátt í sex þúsund kannabisplöntur sem flytja áttu til Hollands. Fimmtíu og átta ára Íslendingur er skráður leigutaki fyrir húsnæðinu. Í verksmiðjunni mátti finna mikið af tækjabúnaði; kælikerfi, ljósum og vökvunartækjum, og komu tæknifræðingar og landbúnaðarsérfræðingar að hönnun hennar. Lögregla telur að um fjársterkan og skipulagðan fíkniefnahring sé að ræða. Gróðurhúsið var í iðnaðarhverfi í útjaðri Molina de Segura, norðan við Murcia. Lögregla komst á snoðir um verksmiðjuna eftir að kvartanir tóku að berast um óreglu og truflanir á rafmagni frá nærliggjandi fyrirtækjum. Í ljós kom að fíkniefnasalarnir höfðu sótt sér rafmagnið með ólöglegum hætti. Átta voru handteknir í kjölfarið, þar af þrír Íslendingar. Íslenski leigutakinn er sagður einn af höfuðpaurum málsins. Talið er að framleiðslan hafi verið hluti af umfangsmiklum smyglhring, sem hafi flutt um tíu tonn af maríjúana til Hollands í hverjum mánuði. Þá leikur grunur á að til hafi staðið að hefja aðra framleiðslu í Alicante. Utanríkisráðuneytinu hefur ekki borist upplýsingar um málið, að sögn Urðar Gunnarsdóttur upplýsingafulltrúa ráðuneytisins. Myndband af verksmiðjunni má sjá hér fyrir neðan.
Tengdar fréttir Íslendingar handteknir í tengslum við gríðarstóra kannabisræktun á Spáni Þrír handteknir voru eftir að lögregla fann gróðurhús með sex þúsund plöntum. 11. október 2015 11:25 Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Sjá meira
Íslendingar handteknir í tengslum við gríðarstóra kannabisræktun á Spáni Þrír handteknir voru eftir að lögregla fann gróðurhús með sex þúsund plöntum. 11. október 2015 11:25