„Þetta er orrustan um Ísland og við ætlum að vinna hana“ Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 17. apríl 2015 18:00 Fjölmennt var í Háskólabíó í gær. „
Það var alveg fullt út úr dyrum,“ segir Kristín Helga Gunnarsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, en hún hélt erindi á Paradísarmissir? Hátíð til verndar hálendinu í gærkvöldi. „Þetta var alveg dásamleg stund. Gefur upptaktinn af því sem koma skal og sýnir að náttúruverndarhreyfingin er fjöldahreyfing.“ Ásamt Kristínu Helgu héldu erindi Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Þórarinn Eyfjörð, Einar Örn Benediktsson, Steinar Kaldal, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Snorri Baldursson, Tinna Eiríksdóttir, Þorbjörg Sandra Bakke, Hrönn Guðmundsdóttir og Andri Snær Magnason. Auk þess stigu á stokk tónlistarmennirnir AmabAdamA, Mammút, 1860, Una Stef, Valdimar Guðmundsson, Jónas Sigurðsson og Ómar Ragnarsson. Viðamiklar framkvæmdir sem ganga gegn vilja almennings Hátíðin var haldin á vegum Landverndar, Náttúruverndarsamtaka Íslands, Ferðafélagi Íslands, Ferðafélaginu Útivist, Ferðaklúbbnum 4x4, Framtíðarlandinu, SAMÚT (Samtök útivistarfélaga) og Gætum Garðsins, með styrk frá Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar í Háskólabíó. Hún var haldin í því skyni að vekja athygli á mikilvægi þess að vernda hálendið í tilefni af fyrirhuguðum framkvæmdum á hálendi Íslands. „Tillögur eru um að leggja uppbyggðan veg um Kjöl og háspennulínu og uppbyggðan veg yfir Sprengisand. Þá undirbúa orkufyrirtækin að reisa að minnsta kosti fimmtán nýjar virkjanir eða uppistöðulón á hálendinu, þar af eru fjórar fyrirhugaðar framkvæmdir á svæðum sem nú eru í verndarflokki í verndar- og orkunýtingaráætlun stjórnvalda (rammaáætlun). Þessar framkvæmdir myndu ganga gegn vilja almennings, en í könnun Capacent Gallup árið 2011 sögðust 56% aðspurðra hlynnt því að miðhálendið verði gert að þjóðgarði,“ segir á vefsíðu framtaksins Hjarta landsins.Fjölbreyttur hópur náttúruverndarsinna Færri komust að en vildu á hátíðina í gær. „Þetta er breiðfylking, það er mjög ólíkt fólk sem er að mæta núna, kemur héðan og þaðan og er með ólíkan bakgrunn.“ Hún lýsti í erindi sínu vitundarvakningu á Íslandi. „Hún er ekki bara á Íslandi heldur út um alla veröld. Við erum mörg og okkur fjölgar mjög hratt,“ sagði Kristín í gær. „Því miður líka vegna þess hve víða blikur eru á lofti.“ Kristín lýsir fyrirhugðum framkvæmdum eins og verið sé að slá þjóðinni mörg ár aftur í tímann. Hún bendir á að maðurinn sé hluti af vistkerfi sem við verðum að skilja vel eftir okkur fyrir komandi kynslóðir. „Öll hugsun stjórnmálamanna ætti að stjórnast af því hversu lítil fótspor við mögulega getum skilið við okkur.“ Engar öfgar í hópi náttúruverndarsinna Hún hefur litla trú á að framkvæmdirnar gangi eftir. „Það er svo óskaplega mikill mannfjöldi sem stendur á móti þessu. Þetta er orrustan um Ísland og við ætlum að vinna hana,“ segir hún og vísar í hversu mikill baráttuhugur hafi verið í fólki í Háskólabíó í gærkvöldi. Kristín segist að lokum ekki skilja þá umræðu sem hefur farið á flug um að náttúruverndarfólk prediki öfgar og séu öfgasinnar. „Við mælum fyrir hófsemd, við erum hófsemdarfólk.“
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Fleiri fréttir Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Sjá meira