Einn af heimsmeisturum Þóris: Lukkusteinn stráksins hennar gerði sitt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. desember 2015 10:30 Heidi Löke. Vísir/AFP
Línumaðurinn Heidi Löke átti frábært heimsmeistaramót með norska kvennalandsliðinu í handbolta og vann nú sitt sjötta gull undir stjórn Þóris Hergeirssonar. Heidi Löke er 33 ára gömul og hefur spilað með norska landsliðinu frá 2006. Hún skoraði sex mörk í úrslitaleiknum og var valin sem besti línumaður heimsmótsins. Heidi Löke tók ekki sjálf við gullpeningnum heldur var það átta ára sonur hennar Alexander sem fékk verðlaunapeninginn um hálsinn. „Það var mjög gaman að hann fékk að taka við gullinu. Hann hefur verið með mér á öllum stórmótunum fyrir utan HM í Brasilíu og það skiptir öllu máli fyrir mig að hafa hann með mér. Ég er mjög ánægð með að hann sé með mér," sagði Heidi Löke við Dagbladet. Löke skoraði alls 35 mörk út 45 skotum á mótinu og varð 22. markahæsti leikmaður mótsins. Hún skoraði mörkin sín bæði með vinstri og hægri hendi eftir því sem passaði. „Strákurinn minn lét mig fá lukkustein fyrir heimsmeistaramótið. Hann sagði við mig að ef ég færi með þennan stein á mótið þá myndum við vinna gullið. Auðvitað var ég með hann í vasanum allan tímann," sagði Löke og sýndi blaðamanninum steininn. Heidi Löke varð nú heimsmeistari í annað skiptið en hún hefur einnig unnið Ólympíugull með norska landsliðnu og er auk þess þrefaldur Evrópumeistari. Allir titlar hennar komu eftir að hún eignaðist Alexander árið 2007. Löke spilar með ungverska liðinu Györi Audi ETO KC og hefur gert það frá árinu 2011. Áður spilaði hún með norska stórliðinu Larvik.
Handbolti Mest lesið Leikið um Ofurskálina í sextugasta sinn: Augu heimsins á Super Bowl Sport „Hún hegðar sér eins og díva“ Sport Trump kallar keppanda Bandaríkjanna á Ólympíuleikunum „algjöran lúser“ Sport Lindsey Vonn fótbrotnaði við fallið Sport Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega Enski boltinn Öll stúkan söng um Orra eftir markið hans Fótbolti Drama í skíðagöngu Dags: Stytti sér leið en fékk samt silfur Sport „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Enski boltinn Guðmundur Magnússon skiptir úr bláu í grænt Íslenski boltinn Fleiri fréttir KA-menn með sjöunda heimasigurinn í níu leikjum „Þú getur ekki fengið bara annaðhvort lof eða last“ Ólík úrslit hjá Hafnafjarðarliðunum: Dagur tryggði ÍBV sigur á Ásvöllum Uppgjör: Afturelding-Valur 27-35 | Arnór með stórleik í stórsigri Eyjakonur gerðu sér góða ferð norður á Akureyri Viktor Gísli vann fjórða titilinn með Barcelona „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Íslensku landsliðskonurnar hjálpuðu að landa fyrsta stiginu Sara Dögg með þrettán mörk og 93 prósent skotnýtingu Náðu ekki körfunum upp og þurftu að fresta leik í Olís-deild karla Toppliðið lagði Hauka örugglega að velli Sigvaldi skoraði fjögur mörk í stórsigri Kolstad Einar fagnaði eftir Íslendingaslag Guðmundur gerði sínu gamla liði grikk með marki á elleftu stundu Leiðin að bikarnum klár og Hafnarfjarðarliðin mætast Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Oddur í ham og Þór dró Stjörnuna niður í fallbaráttu Framkonur flugu upp í þriðja sæti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Sá reynslumesti hættur með landsliðinu Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Valur áfram í undanúrslit bikarsins Sjö íslensk mörk í mikilvægum sigri Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Sigvaldi sneri aftur eftir stutt stopp á EM Sjá meira