Sósíalistar munu ekki styðja ríkisstjórn sem leidd verður af Þjóðarflokknum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. desember 2015 16:32 Mariano Rajoy og Pedro Sanchez á fundinum í dag. vísir/epa
Leiðtogi spænska Sósíalistaflokksins, Pedro Sanchez, og forsætisráðherra Spánar, Mariano Rajoy, sem er formaður Þjóðarflokksins, hittust á stuttum fundi í dag í kjölfar þingkosninganna sem fóru fram í landinu á sunnudag. Sú sérstaka staða er nú uppi í spænskum stjórnmálum að enginn flokkur er með hreinan meirihluta á þingi en það hefur ekki gerst frá því lýðræði var komið á í landinu árið 1975. Því þarf nú að mynda samsteypustjórn eða minnihlutastjórn sem gæti reynst þrautin þyngri en síðustu 40 ár hafa Sósíalistaflokkurinn og Þjóðarflokkurinn skipst á að fara með völdin í landinu. Að loknum fundinum með Rajoy sagði Sanchez að hann ætlaði sér ekki að styðja ríkisstjórn sem sá fyrrnefndi myndi leiða. „Að segja nei við Rajoy er að segja já við breytingum,“ sagði Sanchez við fréttamenn í dag og bætti við að hann vildi ekki sjá nýjar kosningar. Þjóðarflokkurinn hlaut flest atkvæði á sunnudag og Sósíalistaflokkurinn næstflest atkvæði. Nýi vinstriflokkurinn Podemos kom svo inn með krafti í sínum fyrstu þingkosningum og er nú þriðji stærsti flokkurinn á spænska þinginu. Fjórði stærsti flokkurinn er svo hægriflokkurinn Ciudadanos. Leiðtogi þess flokks hefur kallað eftir þriggja flokka stjórn sósíalista, Þjóðarflokksins og Ciudadanos.
Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira