Sport

Maia: Ég er betri en Gunnar Nelson í gólfinu | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Demian Maia er frábær gólfglímumaður.
Demian Maia er frábær gólfglímumaður. v´siir/getty
Eins og aðrir bardagamenn á UFC 194 kvöldinu sem verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD klukkan 03.00 aðfaranótt sunnudags sat Demian Maia fyrir svörum á fjölmiðladeginum í gær.

Brasilíumaðurinn Maia mætir Gunnari Nelson í búrinu á laugardaginn, en þessi þrautreyndi bardagakappi er í sjötta sæti á styrkleikalista veltivigtarinar í UFC. Gunnar er í 12. sæti.

Sjá einnig:Þetta er maðurinn sem ætlar að vinna Gunnar Nelson á laugardaginn

Margir áhugamenn um UFC og blandaðar bardagalistir hafa viljað sjá Maia og Gunnar berjast í langan tíma því þeir eru taldir tveir af allra bestu gólfglímumönnum heims. Báðir eru með svarta beltið í brasilísku jiu jitsu.

„Þú talaðir nú sjálfur um þennan bardaga fyrir löngu síðan,“ sagði Maia hress í viðtali við MMA-stjörnublaðamanninn Ariel Helwani í gær.

Demian Maia situr fyrir svörum í gær.vísir/getty
Vill berjast aftur um titilinn

Maia er ósáttur við stöðu sína á styrkleikalistanum og finnst hann ekki njóta nógu mikillar virðingar. Honum finnst hann eiga vera ofar og vill fá tækifæri til að bera heimsmeistarabeltið um mittið.

Sjá einnig:UFC-veisla í Vegas

„Ég vil berjast um titilinn aftur. Ef það hjálpar mér á þeirri leið að vinna Gunnar þá er það besta mál. Ég vona bara að ef ég vinni þá njóti sigurinn virðingar. Ég er enn í sjötta sæti þrátt fyrir að vinna síðast,“ sagði Maia sem viðurkennir að hann tók snemma eftir Gunnari Nelson.

„Ég sá hann þegar hann var að byrja í UFC. Þá voru margir að tala um hann. Fólk var mjög hrifið af því hvernig hann notaði jiu jitsu og var að klára bardaga. Þá fór fólk fyrst að tala um að við gætum barist og nú er komið að því.“

Gunnar kom á óvart með frábærum höggleik gegn Brandon Thatch.vísir/getty
Til í að fara í gólfið

Maia er enginn vélbyssukjaftur frekar en Gunnar og ber mikla virðingu fyrir mótherjum sínum. Hann segir okkar mann betri en sjálfan sig í einum hlut en þegar kemur að gólfglímu er ekki spurning um hvor sé betri.

Sjá einnig:Gunnar kýlir miklu fastar en Conor | Sjáðu fyrstu dagbókina

„Gunnar er líklega aðeins betri að kýla. Ég veit samt ekki hvert bardaginn fer, en Gunnar hefur meiri trú á höggunum sínum en ég á mínum. Ég er samt betri í gólfglímu. Hann er góður í jiu jitsu en ég er samt betri,“ sagði Maia.

„Hann segist vilja fara í gólfið. Kannski verður hans taktík að halda bardaganum standandi en hann segist vilja fara í gólfið. Hann segist ekki vera hræddur við mig í gólfinu og vill spreyta sig gegn mér þannig við sjáum bara til,“ sagði Demian Maia.

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að neðan.

MMA

Tengdar fréttir

Kúrekarnir hafa tekið yfir MGM Grand

Blaðamaður Vísis átti von á því að sjá háværa Íra um allt MGM Grand-hótelið en þess í stað er hótelið stóra í Las Vegas yfirfullt af kúrekum.

Víkingaför Gunnars Nelson um heiminn

Gunnar Nelson heyr sinn sjöunda UFC-bardaga á ferlinum aðfaranótt sunnudags þegar hann glímir við Demian Maia. Stokkhólmur er eini staðurinn þar sem honum hefur ekki tekist að vinna sigur í UFC.

Steindauður blaðamannafundur hjá UFC

Það var talsvert mikil spenna fyrir blaðamannafundi UFC í kvöld þegar fjórar stærstu stjörnurnar á UFC 194 mættu og svöruðu blaðamönnum. Meira að segja vélbyssukjafturinn Conor McGregor var rólegur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×