Lífið samstarf

Notaleg jólastemning í einni hlýlegustu verslun bæjarins

Feldur Verkstæði er í rúmgóðu og skemmtilegu húsnæði að Snorrabraut 56 og þar er alltaf notaleg stemning.
Feldur Verkstæði er í rúmgóðu og skemmtilegu húsnæði að Snorrabraut 56 og þar er alltaf notaleg stemning.
KYNNING Feldur Verkstæði við Snorrabraut 56 í Reykjavík er ein af þessum fallegu og skemmtilegu búðum í höfuðborginni. Þangað er alltaf notalegt að koma og það er vel tekið á móti öllum.

Hjá Feldi Verkstæði fást ýmsir skemmtilegir aukahlutir sem krydda tilveruna, eins og þessi flottu stígvél og iPad hulstur úr selsskinni.
Þær glæsilegu vörur sem fást hjá Feldi Verkstæði ljá versluninni notalegan blæ. Úrvalið er stórbrotið og fyrir þá sem eru hrifnir af skinni og feldi er Feldur Verkstæði klárlega rétti staðurinn. Það gefur augaleið að í versluninni fæst draumajólagjöf margra.

Tískan í dag einkennist mikið af feldi, skinni og leðri en allt þetta fæst einmitt hjá Feldi Verkstæði og eru vörurnar hver annarri glæsilegri. Þess utan er starfsfólkið boðið og búið að aðstoða og finna hið rétta fyrir hvern og einn. Þjónustan er framúrskarandi og er hægt að breyta og bæta þar til viðskiptavinurinn er kominn með draumaflíkina sína í hendurnar.

Núna fyrir jólin er einstök jólastemning  á Snorrabrautinni og er vel tekið á móti viðskiptavinum með kertaljósum, ljúfum drykkjum og auðvitað góðri og notalegri þjónustu.

Í versluninni er að finna úrval af skinnvestum og húfum en slíkur klæðnaður kemur sér afar vel í íslenskri veðráttu.
Feldur Verkstæði býður upp á glæsilegar kápur og jakka fyrir bæði dömur og herra.
Skinn í öllum stærðum og gerðum. Ef draumaskinnið er ekki til þá er leyst úr því.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×