Hreinsanir hjá SASS Jakob Bjarnar skrifar 18. desember 2015 14:21 Fjórum var sagt upp hjá SASS. Kaldar kveðjur nú fyrir jólin, segja starfsmenn og eru ósáttir við framkvæmdastjórann Bjarna Guðmundsson. visir/pjetur og fl.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa sagt upp fjórum starfsmönnum sem allir bera titilinn ráðgjafar. Veruleg óánægja er með uppsagnirnar og segja starfsmenn þetta kaldar kveðjur. „Þetta er mjög falleg jólagjöf,“ segir Dorothee Katrin Lubecki, ráðgjafi hjá SASS, en hún hefur verið með starfsstöð á Selfossi. Hún segir að með þessu sé verið að fórna áratuga reynslu á þessu sviði á einu bretti.Dorothee segir fyrir neðan allar hellur hvernig staðið er að uppsögnunum.Dorothee segir fyrir neðan allar hellur hvernig staðið hafi verið að uppsögnunum. „Ég get alveg keypt það að menn vilji gera breytingar, en með þessum hætti? Það er ekki góð lykt af þessu,“ segir Dorothee. Hún vísar til þess að ekkert hafi verið rætt við starfsmennina, engir fundir hafi verið haldnir. „Okkur hefur ekki tekist að fá neinar skýringar. Við fengum tölvupóst fyrir tveimur til þremur vikum þar sem okkur var tilkynnt að framundan væru hugsanlega skipulagsbreytingar,“ segir Dorothee. En síðan ekki söguna meir. Uppsagnirnar komu því fólki í opna skjöldu, voru fyrirvaralausar.Bjarni Guðmundsson umdeildurDorothee segir að einn þeirra sem fengu uppsagnarbréf hafi verið í veikindaleyfi en hún telur víst að það sé ólöglegt að segja fólki upp sem er í veikindaleyfi. Sjálf var hún kölluð inn á skrifstofu í lok vinnudags í gær, henni var sagt upp og gefinn kostur á því að þiggja starfslokasamning. Dorothee segist gera ráð fyrir því að hún muni kæra það til verkalýðsfélagsins hvernig að þessu er staðið.Dorothee segir að eftir að Bjarni Guðmundsson tók við fyrir ári sem framkvæmdastjóri hafi mórallinn orðið slæmur, svo slæmur að hún kvartaði undan einelti á vinnustað.Reyndar er það svo að eftir að Bjarni Guðmundsson tók við framkvæmdastjórn hjá SASS, en hann var áður hjá RUV, hefur starfsandinn verið afskaplega slæmur, ef marka má Dorothee; „leiðindamórall“. Bjarni tók við fyrir ári, og svo slæmt var ástandið að Dorothee kvartaði undan einelti á vinnustað fljótlega eftir að Bjarni tók við en dró síðan þá kvörtun til baka, í samráði við stjórn. En ástandið hefur verið slæmt.Vandlifað í þessum heimiDorothee rekur uppsagnirnar þráðbeint til Bjarna, hún telur þær allar undan hans rifjum runnar en, Bjarni nýtur stuðnings stjórnar. Formaður þar er Gunnar Þorgeirsson og hann kannast við óánægjuna. „Klárlega,“ segir Gunnar í samtali við Vísi.Þetta mega heita heldur kaldar kveðjur fyrir jólin? „Jájá, það er oft vandlifað í þessum heimi. En, þetta er ákvörðun sem stjórn hefur tekið og stefnum við á að auka enn frekar tengingar við þessar stofnanir sem við höfum nú þegar. Þetta eru almennar skipulagsbreytingar,“ segir Gunnar.Gunnar Þorgeirsson er formaður stjórnar SASS. Hann segir vandlifað í þessum heimi.Hann segir að gagnrýnt hafi verið að kröftum sé dreift meira; að sameiginlegt fé sveitarfélagana á svæðinu hafi farið í of staðbundin verkefni. „Það verður ekki bæði sleppt og haldið í þeim efnum,“ segir Gunnar og bendir á að til standi að efla tengsl við þær stofnanir sem fyrir eru svo sem þekkingarsetrið í Höfn, þekkingarsetrið í Eyjum, markaðsstofu Suðurlands og fleiri stofnanir vítt og breytt um hinar dreifðari byggðir Suðurlands. „Og eftir stjórnarfund var þessi niðurstaðan,“ segir Gunnar. SASS veltir í heild árlega um 7 til 8 hundruð milljónum en stór hluti þess, eða 250 milljónir fara í rekstur Strætós; almenningssamgöngur.
Mest lesið Hendrik Hermannsson bráðkvaddur Innlent Stefna íslenska ríkinu vegna andláts tveggja ára dóttur Innlent Aþena Sif dæmd fyrir stórfellda líkamsárás með Butterfly-hnífi Innlent Árás á tólf ára stúlku fór betur en á horfðist Innlent Björn Þorláks segir Katrínu ekki virða sig viðlits Innlent Ráðherra sé að skapa ríkinu milljarðatjón með töfum Innlent Ekur 44 kílómetra með ruslið og er ósáttur við sorphirðugjald Innlent Bjarni sagður lítillátur í samanburði við Keníuforseta Innlent Sker úr um hvort sáðlát yfir andlit með valdi sé nauðgun Innlent Kona sem sendi nektarmyndir í bræði fær grænt ljós Innlent Fleiri fréttir Niðurskurður skerðir þjónustu og ógnar öryggi Skipsbrak varpar ljósi á harmleik undan Vestfjörðum fyrir 72 árum Afhentu ráðherra 46 þúsund undirskriftir á eldislöxum Hitafundur í Laugarnesskóla vegna skólauppbyggingar Mættu ríðandi í skólann Stefna íslenska ríkinu vegna andláts tveggja ára dóttur Undir áhrifum og með eftirlíkingu af skotvopni Umtalsverðar breytingar á skipulagi Keflavíkurflugvallar Ráðherra sé að skapa ríkinu milljarðatjón með töfum Ákærður fyrir stunguárás á akbraut Árás á tólf ára stúlku fór betur en á horfðist Bjarni sagður lítillátur í samanburði við Keníuforseta Sleppt úr haldi lögreglu Draumórar að löggæsla muni ekki skerðast Segir fangaverði sinna starfi sínu af stakri trúmennsku Íslendingurinn á meðal þeirra sem slösuðust Sker úr um hvort sáðlát yfir andlit með valdi sé nauðgun Björn Þorláks segir Katrínu ekki virða sig viðlits Vilja upplýsingar frá Strætó vegna framkomu í garð barna Beint streymi: Kynferðisofbeldi og önnur áföll á Íslandi Kona sem sendi nektarmyndir í bræði fær grænt ljós Telja að Quang gæti spillt rannsókninni gangi hann laus Hendrik Hermannsson bráðkvaddur Fangi segir fangelsin „mislélegar kjötgeymslur“ AGS vill skattahækkanir og Norðmenn viðurkenna Palestínu Æsandi bíltúr norður í land Enn frestast utankjörfundaratkvæðagreiðslan Þjóðin klofin hvað varðar hvalveiðar Aþena Sif dæmd fyrir stórfellda líkamsárás með Butterfly-hnífi Yngstu börnin um 14 til 15 mánaða við innritun í haust Sjá meira