Gríðarleg sorg í Rússlandi í kjölfar brotlendingar Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 2. nóvember 2015 07:00 Rússnesk kona syrgir hina föllnu. Nordicphotos/AFP
Hafist var handa við að flytja lík þeirra 224 sem fórust þegar farþegaflugvél rússneska flugfélagsins Kogalymavia hrapaði á laugardaginn á Sínaískaga í Egyptalandi til Sankti Pétursborgar í Rússlandi í gær. Mikil sorg ríkir í Rússlandi í kjölfar brotlendingarinnar og lýsti Vladimir Pútín forseti yfir þjóðarsorg í gær . Þá vottaði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Rússum samúð sína í gær. Sérfræðingur flugmálastofnunar Rússlands sagði í gær að vélin hafi liðast í sundur er hún var enn á flugi. Þó sagði hann of snemmt til að segja nákvæmlega til um hvað gerst hafði. Vélin var á leið sinni til Sankti Pétursborgar frá Sínaískaga og flykktust syrgjendur á Pulkovoflugvöll í gær til að votta fórnarlömbum virðingu sína, en þar átti vélin að lenda. Hersveitir Íslamska ríkisins voru fljótar að lýsa yfir ábyrgð sinni en flugyfirvöld hafa hafnað því og segja ekkert benda til hryðjuverkaárásar. Óljóst er enn hvað grandaði vélinni en hún hvarf skyndilega af ratsjám eftir að hafa verið á lofti í 23 mínutur í blíðviðri. Yfirmaður flugmálastofnunnar Egypta, Adele Al-Mahjoob, sagði tæknibilum þó líklegustu orsökina. Forseti Egypta, Abdel Fattah el-Sisi, bað fólk um að hrapa hins vegar ekki strax að ályktunum. „Þetta er flókið mál sem krefst ítarlegrar rannsóknar sem gæti tekið marka mánuði,“ sagði forsetinn í ávarpi sínu í gær.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira