Löwen með fjögurra stiga forskot á toppnum | Kiel steinlá Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. september 2015 20:00 Kiel beið afhroð gegn Göppingen í kvöld. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen er áfram með fullt hús stiga í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta eftir 11 marka sigur, 31-20, á nýliðum Stuttgart í kvöld. Sigurinn var afar öruggur en staðan í hálfleik var 19-8, Löwen í vil. Nicolaj Jacobsen, þjálfari Ljónanna, dreifði álaginu vel í kvöld en allir útileikmenn Löwen komust á blað í leiknum. Uwe Gensheimer var þeirra markahæstur með fimm mörk. Alexander Petersson og Stefán Rafn Sigurmannsson skoruðu báðir tvö mörk. Löwen er með fjögurra stiga forskot á Kiel sem steinlá, 29-21, fyrir Göppingen á útivelli. Þetta var annað tap lærisveina Alfreðs Gíslasonar í deildinni í vetur en þeir eru strax komnir í eltingarleik við Löwen. Göppingen var allan tímann með undirtökin og vann sanngjarnan sigur sem kemur liðinu upp fyrir Kiel í 2. sæti deildarinnar. Christian Sprenger var markahæstur í liði þýsku meistarana með fimm mörk en Steffen Weinhold og Joan Canellas komu næstir með fjögur mörk hvor. Serbinn Zarko Sesum skoraði mest fyrir Göppingen, eða sex mörk. Lærisveinar Erlings Richardssonar í Füchse Berlin gerðu jafntefli við Flensburg, 30-30, á útivelli. Petar Nenadic skoraði átta mörk fyrir Berlínarrefina sem leiddu með tveimur mörkum þegar 44 sekúndur voru eftir af leiknum. Danirnir Lasse Svan Hansen og Henrik Toft Hansen sáu hins vegar til þess að Flensburg fékk annað stigið með því að skora tvö síðustu mörk leiksins. Bjarki Már Elísson var ekki á meðal markaskorara Füchse Berlin sem er með níu stig í 5. sæti deildarinnar, jafnmörg og Flensburg sem er í því sjötta.
Handbolti Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira