Tíu prósent eitrana vegna neyslu á ofskynjunarsveppum Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 16. september 2015 19:30
Rúm tíu prósent þeirra sem koma á Landspítalann vegna eitrana frá ólöglegum vímuefnum, koma vegna neyslu á ofskynjunarsveppum.Tvö til fimm eitrunartilvik vegna sveppanna komi upp á ári. Læknir og eiturefnafræðingur segir dæmi um dauðsföll af völdum samskonar sveppa í nágrannalöndunum. Stöð 2 greindi í gær frá því hinn sautján ára gamli Bjarki Freyr hefði fleygt sér niður af sex metra háum svölum eftir að hafa neytt ofskynjunarsveppa. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að reglulega komi fólk inn þangað inn í annarlegu ástandi vegna neyslu ofskynjunarsveppa. Sérstaklega sé þá algengt að kannabisneytendur sæki í skynáhrifin sem sveppirnir veita. Að sögn fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu koma árlega upp mál þar sem ofskynjunarsveppir koma við sögu. Þó er um að ræða minniháttar vörslumál og ekkert sem bendir til þess að skipulögð dreifing eða sala sé á þessari tegund fíkniefna þó bannað sé að neyta þeirra og selja. Á hverju ári koma upp tilfelli um eitranir vegna ofskynjunarsveppa inn á borð eitrunarmiðstöðvar Landspítalans en í flestum tilfellum er þar um að ræða ungt fólk. Svanur Sigurbjörnsson, læknir og eiturefnafræðingur, segir einkennin margvísleg.„Manneskjan er mjög rugluð og það er ekki hægt að fá hana til samstarfs um neitt. Hún virðist sjá skordýr og flugur og er oft gjörsamlega bara frávita. Rétt eins og móðirin lýsti í viðtalinu í gær þá er þetta náttúrlega hræðilegt fyrir ættingja að horfa upp á og afskaplega vandmeðfarið á bráðamóttöku,“ segir hann.Dæmi eru um dauðsföll af völdum sveppa á hinum Norðurlöndunum. „Það eru mörg dæmi um dauðsföll í nágrannalöndum okkar, og það er sérstaklega vegna þess að þar eru sveppir sem eru mjög eitraðir fyrir lifur. Hér heima höfum við ekki haft nein slíkt tilvik sem betur fer en það gæti verið þó ég viti ekki um það, “ segir Svanur.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Fleiri fréttir „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Sjá meira