Formúla 1

Rosberg: Ég klúðraði ræsingunni, sem var vesen

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton fagnar 25 stigum í Belgíu.
Hamilton fagnar 25 stigum í Belgíu. Vísir/Getty
Lewis Hamilton vann á Spa, hann missti forystuna á fyrsta hring og náði henni strax aftur. Hver sagði hvað eftir spennandi keppni?

„Bíllinn var frábær, áhorfendur hafa verið ótrúlegir alla helgina. Þetta var bara surning um að passa upp á dekkin og passa sig á Nico,“ sagi Hamilton á verðlaunapallinum.

„Ég klúðraði ræsingunni, sem var vesen. Ég eltist við Lewis alla keppnina en gat ekki náð honum,“ sagði Nico Rosberg á verðlaunapallinum.

„Ég átti frábæra tímatöku og góða keppni. Það er sérstakt að standa hér, ég átti góða ræsingu þrátt fyrir að ræsingin 2012 komi alltaf upp í hugann þegar ég er á ráslínunni hér,“ sagði Romain Grosjean á verðlaunapallinum. Hann batt endi á keppni margra með því að lenda í árekstri í ræsingu á Spa 2012.

„Það er langt síðan við náðum verðlaunum síðast. Það er gott að geta sett peningavændræðin í pásu og njóta augnabliksins. Við hefðum geta reynt fram úr akstur á Vettel ef dekkið hefði ekki sprungið. Við höfum átt afar erfitt tímabil og þetta er mikið afrek,“ sagði Alan Permane, keppnisstjóri Lotus. Bílar liðsins hafa verið kyrrsettir þangað til einhverjir rekningar verða greiddir. Permane sagðist vona að það gerist snemma í næstu viku og að liðið geti mætt til Monza.

„Lewis og Nico stóðu sig vel ásamt öllum öðrum í liðinu. Mercedes hefur snúið aftur eftir erfiða helgi í Búdapest,“ sagði Niki Lauda, ráðunautur Mercedes liðsins.

Romain Grosjean var kátur eftir keppnina.Vísir/Getty
„Nú er miklu meira að gera í bílnum og ég er viss um að ég myndi ekki muna allar þær aðgerðir sem þarf að fara í gegnum til að framkvæma ræsingu. Ökumennirnir eru betri í þessu en ég,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.

Aðspurður hvort Lotus hefði þurft að fá leyfi hjá vélaframleiðandanum Mercedes til að nota fullt afl vélarinnar sagði Wolff: „Það hefur greinilega orðið einhver misskilningur. Það arf enginn að fá leyfi til þess. Það er þó takmarkaður fjöldi kílómetra sem má aka á fullu afli.“

„Við erum afar vonsviknir með afrakstur dagsins, við vildum ná verðlaunasæti. Ræsingin var léleg á báðum bílum, þeir spóluðu af stað og töpuðu tíma. Við þurfum að biðja Valtteri afsökunnar á því að setja vitlaust dekk undir. Við eyðilögðum keppnina fyrir honum. Við ætlum ekki að kenna neinum einum um, við tökum á þessu sem lið,“ sagði Rob Smedley, frammistöðustjóri Williams liðsins.

Hér fyrir neðan má sjá helstu úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.


Tengdar fréttir

Rosberg fljótastur á föstudagsæfingum

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins, hann byrjaði illa á fyrri æfingunni. Seinni æfing hans endaði skyndilega þegar dekk sprakk á mikilli ferð.

Lewis Hamilton vann í Belgíu

Lewis Hamilton á Mercedes vann á Spa brautinni í Belgíu. Liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar og Romain Grosjean á Lotus varð þriðji.

Raikkonen áfram hjá Ferrari 2016

Kimi Raikkonen verður áfram ökumaður Ferrari liðsins á næsta tímabili. Ýmsar getgátur hafa verið á loft um framtíð hans og möguleika annarra ökumanna til að ná í sæti hjá liðinu.

Lewis Hamilton á ráspól í Belgíu

Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól í Belgíu. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Valtteri Bottas á Williams þriðji.

McLaren notar tvær vélar í hvorn bíl á Spa

McLaren mætti með splunkunýjar Honda vélar til Belgíu. Liðið ætlar að beita sérstakri aðferð um helgina. Tvær nýjar vélar fara í hvorn bíl um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×