Formúla 1

Lewis Hamilton á ráspól í Belgíu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton tryggði sér ráspólsbikarinn í dag. Tímabilið er rétt hálfnað en egnin getur náð honum.
Lewis Hamilton tryggði sér ráspólsbikarinn í dag. Tímabilið er rétt hálfnað en egnin getur náð honum. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól í Belgíu. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Valtteri Bottas á Williams þriðji.

16 sinnum í síðustu 47 keppnum á Spa hefur ökumaður á ráspól unnið keppnina.

Mercedes menn tóku snemma forystu í fyrstu lotu á millihörðum dekkjum. Sergio Perez átti hraðasta hring um tíma eftir að hann fór út á mjúkum dekkjum.

Will Stevens og Roberto Merhi á Manor duttu út í fyrstu lotu ásamt Jenson Button og Fernando Alonso á McLaren og Felipe Nasr á Sauber. Mercedes menn náðu toppsætunum tveimur á millihörðum dekkjum.

Max Verstappen sat í bílskúrnum í annarri lotu. Það þurfti að skipta um vél í bíl hans.Vísir/Getty
McLaren sætir samtals 105 sæta víti eftir tímatökuna. Button verður færður aftur um 50 sæti og Alonso 55. Safnast þegar saman kemur og þegar allt er sett nýtt í vélina hrúgast vítin upp.

Kimi Raikkonen stöðvaði í brautarkanti, Ferrari bíllinn drap á sér. „Það bilaði eitthvað,“ sagði Raikkonen í talstöðinni. Rauðum flöggum varð veifað í kjölfarið og tímatakan stöðvuð á meðan bíllinn var fjarlægður.

Max Verstappen ákvað að fara ekki út í annarri lotu. Hann átti eftir að færast aftur um 10 sæti og fá nýja vél. Það var tilgangslaust að mati Toro Rosso að reyna að lágmarka skaðann.

Raikkonen og Verstappen komust ekki áfram. Auk þeirra sátu eftir Nico Hulkenberg á Force India, Daniil Kvyat á Red Bull og Marcus Ericsson á Sauber.

Rosberg reyndi allt en ekkert dugði til að snúa á Hamilton í dag.Vísir/Getty
Baráttan um ráspól var á milli Mercedes ökumannanna. Hamilton var á undan út á brautina og setti góðan tíma, 1:47,449. Rosberg gat ekki svarað í fyrstu tilraun lotunnar heldur endaði á 1:47,895. Hann gerði augljós mistök og átti inni msimuninn og meira til.

Rosberg reyndi sitt besta en það dugði ekki til. Hraði Sebastian Vettel á Ferrari bílnum virtist hverfa í lokatilrauninni.

Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 11:30 á Stöð 2 Sport á morgun, sunnudag.

Hér fyrir neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar.


Tengdar fréttir

Rosberg fljótastur á föstudagsæfingum

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins, hann byrjaði illa á fyrri æfingunni. Seinni æfing hans endaði skyndilega þegar dekk sprakk á mikilli ferð.

Honda setur markið á Ferrari

Honda ætlar að mæta með talsvert mikið uppfærða vél til Belgíu um helgina. Honda vonast til að hún jafnist nú á við Ferrari vélina.

Raikkonen áfram hjá Ferrari 2016

Kimi Raikkonen verður áfram ökumaður Ferrari liðsins á næsta tímabili. Ýmsar getgátur hafa verið á loft um framtíð hans og möguleika annarra ökumanna til að ná í sæti hjá liðinu.

McLaren notar tvær vélar í hvorn bíl á Spa

McLaren mætti með splunkunýjar Honda vélar til Belgíu. Liðið ætlar að beita sérstakri aðferð um helgina. Tvær nýjar vélar fara í hvorn bíl um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×