Formúla 1

Lewis Hamilton vann í Belgíu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton kom fyrstur í mark. Hann missti forystuna í smá stund en var aldrei ógnað eftir að hann náði henni aftur.
Lewis Hamilton kom fyrstur í mark. Hann missti forystuna í smá stund en var aldrei ógnað eftir að hann náði henni aftur. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes vann á Spa brautinni í Belgíu. Liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar og Romain Grosjean á Lotus varð þriðji.

Ræsingin í dag var algjörlega í höndum ökumanna í fyrsta skipti mörg ár. Öll aðstoð af þjónustusvæðinu var bönnuð. Nico Hulkenberg veifaði höndum og komst ekki af stað.

Sergio Perez tók forystu á fyrsta hring. Mercedes menn áttu ekki góða ræsingu. Hamilton tók þó forystuna fljótt aftur, Rosberg var í fjórða sæti eftir fyrsta hring.

Pastor Maldonado á Lotus missti vélarafl á öðrum hring. Hann vill sennilega gleyma þessari helgi sem allra fyrst.

Ferrari menn unnu sig hratt upp í byrjun keppninnar. Kimi Raikkonen ræsti 16. og var orðinn 11. á fjórða hring. Vettel ræsti áttundi og var orðinn fimmti á þriðja hring.

Vettel var óheppinn, hvellsprungið dekk kostaði hann þriðja sæti.Vísir/Getty
Vandræðaleg mistök áttu sér stað í fyrsta þjónustuhléi Williams liðsins, Valtteri Bottas var sendur af stað með eitt með millihart dekk en restin var mjúk. Slíkt er með öllu bannað. Bottas þurfti að aka í gegnum þjónustusvæðið í refsingarskyni.

Daniel Ricciardo hætti keppni á 20. hring, Red Bull bíllinn missti afl og nam staðar. Sýndar-öryggisbíll var notaður á meðan Red Bull bíllinn var færður í öruggt skjól. Leiðinlegur endir fyrir ökumanninn sem vann á Spa í fyrra.

Hamilton og Rosberg óku frekar áreynslulaust um miðbik keppninnar. Það virtist enginn geta ógnað þeim. Vettel var fastur út á brautinni til að koma í veg fyrir að Grosjean kæmist fram úr.

Carlos Sainz lagði Toro Rosso bíl sínum inn í bílskúr á hring 34. Hann var langt á eftir öðrum og þá var skynsamlegast að hætta keppni, spara vélina og gírkassann.

Rigningin ógnaði örlítið undir lok keppninnar en hafði ekki áhrif á keppnina. Baráttan um þriðja sætið varð afar spennandi á síðustu fimm hringjum keppninnar. Vettel og Grosjean glímdu og bilið var innan við ein sekúnda, Grosjan hafði því DRS til aðstoðar.

„Gefðu allt í botn, reynum að ná Vettel,“ voru skilaboðin sem Grosjean fékk þegar fjórir hringir voru eftir.

Daniil Kvyat á Red Bull fór hamförum undr lokinn og kom sér inn á meðal fimm efstu manna.

Löng lota á sama dekkjaganginum kostaði Vettel verðlaunasæti. Afturdekk sprakk á næst síðasta hring og færði Grosjean þriðja sæti.

Hér fyrir neðan má finna öll helstu úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.


Tengdar fréttir

Rosberg fljótastur á föstudagsæfingum

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins, hann byrjaði illa á fyrri æfingunni. Seinni æfing hans endaði skyndilega þegar dekk sprakk á mikilli ferð.

Honda setur markið á Ferrari

Honda ætlar að mæta með talsvert mikið uppfærða vél til Belgíu um helgina. Honda vonast til að hún jafnist nú á við Ferrari vélina.

Raikkonen áfram hjá Ferrari 2016

Kimi Raikkonen verður áfram ökumaður Ferrari liðsins á næsta tímabili. Ýmsar getgátur hafa verið á loft um framtíð hans og möguleika annarra ökumanna til að ná í sæti hjá liðinu.

Lewis Hamilton á ráspól í Belgíu

Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól í Belgíu. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Valtteri Bottas á Williams þriðji.

McLaren notar tvær vélar í hvorn bíl á Spa

McLaren mætti með splunkunýjar Honda vélar til Belgíu. Liðið ætlar að beita sérstakri aðferð um helgina. Tvær nýjar vélar fara í hvorn bíl um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×