Ekkert bólar á niðurstöðum í dularfulla kattamálinu í Hveragerði Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 24. ágúst 2015 13:46 Lögregla hefur þrjá kattadauða til rannsóknar. Vísir/Getty
Lögreglan á Suðurlandi hefur enn til rannsóknar dularfulla kattadauða í Hveragerði en eigendur katta sem fundist hafa dauðir grunar að þeim hafi verið komið fyrir kattarnef með eitruðum fiskflökum. Lögregla sendi kattahræ sem grafin voru upp til rannsóknar hjá Rannsóknarstöðinni að Keldum en þar er skoðað hvort eiturefni finnist í dýrunum. Þá var bláleitt fiskflak sent til rannsóknar hjá Rannsóknarstofu háskólans en talið var að því hefði verið velt upp úr frostlegi í því skyni að drepa kettina.Sjá einnig: Lögregla rannsakar dularfullu kattadauðana í Hveragerði Engar niðurstöður eru komnar enn sem varpa ljósi á málið. Lögreglan á Suðurlandi segir það þar að auki ólíklegt að hægt verði að finna nokkurn sökudólg komi í ljós að um saknæma háttsemi hafi verið að ræða. Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir að lögreglu hafi aðeins borist tilkynningar um þrjá ketti sem grunur leikur á um að hafi verið byrlað eitur. Hins vegar hafa á tug dauðra katta verið nefndir í umræðum um málið og í fjölmiðlum. Þorgrímur segir að gott hefði verið að hafa fleiri hræ til rannsóknar.Í kvöldfréttum Stöðvar 2 fyrr í mánuðinum kom fram að samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun, sem hefur málin til rannsóknar, er talið að kettirnir hafi dáið vegna eitrunar.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira