Nú fitnaði bílastæðasjóður! Dagþór Haraldsson skrifar 27. ágúst 2015 06:30 Dagurinn er 22. ágúst. Menningarnótt. Hátíðisdagur allra Reykvíkinga. Öllum miðbænum lokað fyrir bílaumferð. Aðgangur er tepptur í öll bílastæðahús borgarinnar. Búinn er til skortur á bílastæðum. Á sama tíma er búist við vel yfir 100 þúsund manns í miðborgina. Boðið er upp á frítt far í almenningsvagnana en það getur aldrei hentað öllum. Skutla á að ferja fólk frá Kirkjusandi og niður í bæ, en byrjar ekki fyrr en tólf. Grandvaralaus borgari ákveður að mæta í „glæpagöngu“ sem átti að hefjast við stjórnarráðshúsið klukkan ellefu. Helst þótti vænlegt að finna bílastæði við HÍ, en þar var ekki stæði að finna á afmarkaða bílastæðinu. En röð bíla hafði verið lagt upp á gras við bílastæðið og viðkomandi þóttist heldur heppinn að þar var eitt stæði laust. Þessi röð bíla var ekki fyrir neinum og olli engum skemmdum. Sumsé öllum að meinalausu. „Glæpagöngunni“ lauk um eitt og þegar komið var aftur að bílnum þá beið „glaðningurinn“ eða hitt þó heldur. Miði á framrúðunni og sekt upp á heilar 10 þúsund krónur! „Stórglæpa“varnarsveit Reykjavíkur hafði verið kölluð út til að notfæra sér þessar heimatilbúnu kjöraðstæður. Tækifærið gat ekki verið betra til að láta „svínin“ finna fyrir því. Það væri gaman að fá uppgefna upphæðina, sem Reykjavík tókst komast yfir þennan svokallaða hátíðisdag, sem var svo sannarlega ekki hátíðisdagur allra. Upphæð sekta á að ákvarðast af tvennu. Fyrst skal telja alvarleika brotsins og hvaða afleiðingar brotið hefði getað haft á samfélagið og samborgarana. Síðan að fæla fólk frá því að brjóta af sér, þar sem það veit að annars er sekt yfirvofandi. Að rukka 10 þúsund krónur í þessu tilfelli er einfaldlega valdbeiting framkvæmd af löglegu yfirvaldi og er ekki í neinu samhengi við brotið sjálft. 5 þúsund hefði verið hægt að sætta sig við. Er ekki kominn tími til að borgaryfirvöld láti af ofsóknum sínum gagnvart bíleigendum? Hlutverk borgarstjórnar er að vinna fyrir alla borgarana, en ekki láta öfgastefnufólki eftir að fara offari gegn samborgurum sínum. Þetta eru ljótar og lúalegar aðferðir borgaryfirvalda. Ég skal glaður borga 5 þúsund fyrir þessa yfirsjón mína, en ég óska eftir að „valdbeitingar“hlutinn (5 þúsund krónur) verði endurgreiddur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar