Viðskipti innlent

Fjárdrátturinn í MP banka: Millifærði tugi milljóna á reikninga móður sinnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í næstu viku.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í næstu viku. Vísir/Valli
Fyrrverandi starfsmaður MP banka hefur verið ákærður fyrir fjárdrátt. Konan er sökuð um að hafa dregið að sér rúmlega 60 milljónir króna af reikningum bankans og lagt inn á fjóra reikninga móður sinnar. RÚV greindi fyrst frá málinu í gær og hefur MP banki nú birt frétt um málið á heimasíðu bankans.

Fréttablaðið greindi fyrst frá málinu í mars síðastliðnum en málið kom upp við reglubundið innra eftirlit. Grunur vaknaði um að starfsmaður í bakvinnslu bankans hefði misnotað aðstöðu sína og dregið að sér fé.

„Bankinn lítur málið afar alvarlegum augum og brást þegar hart við. Málinu var strax vísað til lögreglu og hefur bankinn unnið náið með lögreglu við að upplýsa brotið að fullu. Starfsmanninum var umsvifalaust sagt upp störfum,“ segir í fréttinni á vef MP banka.

Hæsta millifærslan upp á fimm milljónir

Meint brot áttu sér stað á rúmlega tveggja ára tímabili og dró starfsmaðurinn fyrrverandi sér síðast fé um miðjan febrúar síðastliðinn. Um var að ræða færslu upp á 1,6 milljónir króna að því er segir í ákæru sem RÚV hefur undir höndum. Millifærslurnar voru á bilinu 135 þúsund krónur upp í tæplega þrjár milljónir. Þá er hún sökuð um að hafa greitt af reikningi MP banka inn á reikning Íbúðalánasjóðs til að greiða upp veðskuldabréf upp á rúmar fimm milljónir króna.

„Starfsmaðurinn fyrrverandi lagði mikla vinnu í að fela slóð sína og koma í veg fyrir að brotið uppgötvaðist. Þannig eru í ákæru tíundaðar 110 færslur þar sem fé var fært úr bankanum en í raun þurfti að rekja umtalsvert fleiri færslur til að upplýsa brotið þar sem upphæðir voru færðar fram og til baka og brotnar upp og lagðar saman á ýmsan máta.“

Verkferlum í bankanum breytt

Í fréttinni á vef MP banka er fullyrt að meint brot konunnar snúa ekki að fjármunum viðskiptavina bankans og hafi engin áhrif haft á þá. Bankinn sé tryggður fyrir tjóninu og gera megi ráð fyrir að það fáist bætt að langstærstum hluta.

„Í kjölfar þess að upp komst um meint brot starfsmannsins hefur verið farið vandlega yfir þær aðferðir sem hann beitti, verkferlum innan bankans breytt og innra eftirlit eflt til að tryggja að sambærilegt mál komi ekki upp aftur.“

Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í næstu viku.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×