Viðskipti innlent

MP banki bregst hart við meintu misferli starfsmanns

Bjarki Ármannsson skrifar
Starfsmanni MP banka hefur verið sagt upp störfum vegna gruns um misferli í starfi.
Starfsmanni MP banka hefur verið sagt upp störfum vegna gruns um misferli í starfi. Vísir/Valli
Starfsmanni MP banka hefur verið sagt upp störfum vegna gruns um misferli í starfi. Meint brot uppgötvaðist við innra eftirlit og hefur verið tilkynnt til lögreglu.

Málið er litið afar alvarlegum augum innan bankans en snýr ekki að fjármunum viðskiptavina hans. Samkvæmt upplýsingum frá bankanum eru áhrifin af meintu misferli á bankann hverfandi með hliðsjón af stærð hans. 

Ekki er hægt að greina nánar frá málinu á meðan lögregla hefur það til rannsóknar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×