„Engin hetjudáð að vera fyllibytta sem flytur til Grænlands og barnar barn“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. júlí 2015 15:45 Sigurður Pétursson, einnig þekktur sem Ísmaðurinn. vísir/reynir traustason
Guðbjörg Ýr, dóttir Sigurðar Péturssonar, Ísmannsins svokallaða, segir að faðir sinn sé ekki sú hetja sem sumir telja að hann sé ef miðað er við þá mynd sem dregin hefur verið upp af honum í fjölmiðlum. Sigurður komst í fréttir hér á landi fyrr í sumar þegar honum og fjölskyldu hans var bjargað eftir að bátur þeirra sökk undan ströndum Grænlands. Þá vakti það nokkra athygli að kona hans og barnsmóðir, Anna Manikutdlak, er 19 ára gömul en saman eiga þau Sigurður, sem er 66 ára, 3 ára gamla dóttur. Guðbjörg segir að pabbi sinn hafi kynnst Önnu í gegnum fjölskyldu fyrrverandi sambýliskonu hans en Sigurður flutti árið 1997 til Grænlands. „Anna hafði verið mikið inni á heimilinu og ég man eftir henni frá því hún var bara bara barn. Hún var rosalega horuð sem barn og mikil eymd var í kringum hana í fjölskyldunni,“ segir Guðbjörg í viðtali við vefmiðilinn Hún. Hún viðurkennir að hafa hvatt pabba sinn til að vera í samskiptum við Önnu því hún hafi fundið til með stúlkunni.Velti fyrir sér af hverju faðir hennar faldi meðgönguna og barnið Guðbjörg segist ekki viss um hvenær samband föður hennar og Önnu byrjaði en það vakti athygli hennar að þau sváfu saman í rúmi þegar þau heimsóttu Ísland þegar Anna var 14-15 ára gömul. Anna fæddi barn í febrúar 2012 en Guðbjörg frétti ekki af því fyrr en í október sama ár þegar hún fór inn á Facebook-síðu Önnu. Sigurður ræddi óléttuna ekkert við dóttur sína. Á þeim tíma þegar Anna er ólétt heimsótti Jón Ársæll Sigurð til Grænlands og gerði þátt um Ísmanninn fyrir sjónvarpsþáttinn Sjálfstætt fólk. Guðbjörg tók eftir sérstöku atviki í þættinum: „Í þættinum heyrist fótatak uppi og Jón Ársæll spyr hann hvort þetta sé fótatak sem hann heyrir og þá svarar pabbi bara: „Nei ætli þetta séu ekki bara draugarnir?“ Þá hefur þetta væntanlega verið Anna, ófrísk á efri hæðinni,“ segir Guðbjörg sem veltir því fyrir sér af hverju pabbi hennar hélt meðgöngunni og barninu leyndu.Sigurður ísmaður (Ath: Er ekki á sunnudaginn)Ein perlan úr safninu -ATH er EKKI á sunnudaginn ;-)Posted by Sjálfstætt fólk on Wednesday, 13 May 2015 „Ef honum finnst hann ekki hafa verið að brjóta neitt af sér, af hverju var hann þá að fela þetta alla meðgönguna og barnið? [...] Pabbi minn hefur alltaf komið fram í fjölmiðlum og er látinn líta út eins og einhver hetja sem mér finnst hann ekki vera. Hann á að vita betur og við þurfum líka að gera það upp við okkur sem samfélag hvort okkur finnist þetta vera í lagi. Ef við setjum íslenska stelpu í stað Önnu í þessar aðstæður þá yrði allt brjálað! [...] Hann er engin hetja. Það er engin hetjudáð að vera fyllibytta sem flytur til Grænlands og barnar barn,“ segir Guðbjörg.„Í þessari siglingu varð Ísmaðurinn til“ Í færslu á Facebook-síðu sinni rifjar Guðbjörg upp þegar hún fór til Grænlands til að vinna á hreindýrabúi árið 1998. Hún segist hafa vaknað upp einn morguninn en pabbi hennar var þá farinn af stað í siglingu án þess að kveðja. Guðbjörg lýsir því svo að hún hafi verið ein með þremur grænlenskum mönnum næstu daga á eftir. „Einn af þeim var fullur í rúma viku og þurfti þessi stúlka að bolta hurðarhúninn fastan með stól svo hann kæmist ekki inn til hennar á næturnar. Á þriðja degi gripu hinir mennirnir inn í og svaf hún með þeim í herbergi það sem eftir lifði sumars. Í þessari siglingu varð Ísmaðurinn til og pabbi stúlkunnar dó. Það hefur bara tekið 17 ár fyrir mig að átta mig á því...“ Friðrik Pétur Sigurðarson, sonur Sigurðar, tjáði sig um málið í athugasemdakerfi við viðtal Stundarinnar við Sigurð þegar þeim var bjargað í sumar. Gagnrýndu margir samband Sigurðar við Önnu og svaraði Friðrik Pétur fyrir föður sinn. Hann sagðist skilja stúlkuna fullkomlega að ná sér í föður sinn. Það kæmi engum við og fólk ætti ekki að fella dóma. Aldurinn skipti engu. „Hún hefur líf með honum og það sem ég sé á henni er hún yfir sig ástfánginn af föður mínum Sigurði,“ sagði Friðrik. Viðtalið við Guðbjörgu á Hún má lesa í heild sinni hér.1998 fór unglingsstúlka til Grænlands að vinna á hreindýrabúi. Einn morguninn vaknaði hún þegar að pabbi hennar var lagð...Posted by Guðbjörg Ýr on Wednesday, 22 July 2015
Tengdar fréttir Ísmanninum og fjölskyldu hans bjargað eftir að bátur þeirra sökk Var á leið frá Bolungarvík til Grænlands. 14. júlí 2015 15:57 Höfðu verið föst á ísnum í heila viku Ísmaðurinn og fjölskylda sluppu með skrekkinn í gær eftir að gat kom á bát þeirra undan austurströnd Grænlands og hann fylltist af sjó. 14. júlí 2015 18:14 Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Sjá meira
Ísmanninum og fjölskyldu hans bjargað eftir að bátur þeirra sökk Var á leið frá Bolungarvík til Grænlands. 14. júlí 2015 15:57
Höfðu verið föst á ísnum í heila viku Ísmaðurinn og fjölskylda sluppu með skrekkinn í gær eftir að gat kom á bát þeirra undan austurströnd Grænlands og hann fylltist af sjó. 14. júlí 2015 18:14