James segir að Smith megi klúðra 100 skotum | myndband 14. júní 2015 17:00 LeBron James og Stephen Curry eigast hér við fjórða leik liðanna. vísir/afp
Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers mætast í fjórða leik liðanna í úrslitum NBA í nótt. Staðan í einvíginu er 2-2 en leikurinn í kvöld fer fram á heimavelli Golden State í Oakland. Cleveland þótti ekki spila vel í síðasta leik. LeBron James virkaði þreyttur enda mæðir mikið á honum í fjarveru Kevin Love og Kyrie Irving. Slök skotnýting leikmanns eins og J.R. Smith hjálpaði heldur ekki til. Gegn Atlanta var Smith með 18 stig að meðaltali og 50% skotnýtingu en í síðasta leik setti hann ekkert af 8 þriggja stiga skotum sínum niður. LeBron James hefur komið Smith til varnar í viðtölum í aðdraganda fimmta leiksins og segir að Smith þurfi að einbeita sér að því að finna sitt form á nýjan leik en ekki svekkja sig á síðasta leik. "Mér er alveg sama hvað hann klikkaði á mörgum skotum. Ég vil ekki að hann svekki sig á leik fjögur. J.R. leggur mikið á sig á æfingum. Við erum allir atvinnumenn í íþróttinni og reynum sífellt að bæta okkur. Við megum aldrei láta neinn, hvorki fjölmiðla, stuðningsmenn, andstæðinga né fjölskyldu okkar sjá að við séum niðurlútir yfir því sem gengið hefur á. Hann verður að hafa trú á sér," segir LeBron James um liðsfélaga sinn. "Hann [Smith] má klúðra 100 skotum. Ef hann hefur trú á sínum hæfileikum, þá hef ég trú á honum. En sem keppnismaður, ef þú missir trú á sjálfum þér, þá er erfitt að vinna sig út úr því. En ef hann hefur trú á sér, þá verður allt í lagi með hann," segir James um félaga sinn. Ekki voru þó allir jafn afslappaðir yfir frammistöðu Cleveland í síðasta leik líkt og myndbandið hér fyrir neðan sýnir.
Körfubolti Mest lesið Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Golf Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Fótbolti Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Golf Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Fleiri fréttir Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Sjá meira