Gunni Þórðar um hassið: Ætluðu ekki að láta neina löggu í Keflavík stoppa sig Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. apríl 2015 08:00 Gunnar Þórðarson hefur samið fjölmörg dægurlög sem slegið hafa í gegn hjá landanum undanfarna áratugi. Vísir/GVA
Gunnar Þórðarson, einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, segir það hafa verið lítið mál að hætta hassreykingum og áfengisdrykkju. Eftir á að hyggja hafi lögin sem hann samdi á þeim tíma þegar hassreykingarnar voru í hámarki ekki hans bestu lög. Gunnar ræddi opinskátt um vímuefnaneyslu sína og félaga hans í Hljómum í þættinum Mannamáli í vikunni. Hann segist fyrst hafa prófað að reykja hass árið 1967 þegar Hljómar voru að spila úti í Svíþjóð. „Það var einhver rótari sem vildi endilega láta okkur prófa,“ segir Gunnar en strákarnir úr Keflavík voru þá staddir á tónlistarklúbbi. Hann segir þetta hafa verið part af tíðarandanum. „Við lentum í því að það voru löggur í Keflavík sem voru bara á eftir okkur,“ segir Gunnar. Aftur á móti hefðu Bítlarnir prófað þetta og dásamað.Umræðuna um vímuefnaneysluna má sjá hér að neðan.Varð hundleiðinlegt svo hann hætti „Við ætluðum ekki að láta neina löggu í Keflavík stoppa það. Við urðum að prófa þetta. Vita hvað þetta væri.“ Gunnar segist hafa notið reykinganna til að byrja með. „Þú ferð í dálítið annan hugarheim,“ segir Gunnar og játar því að lagasmíðarnar hafi breyst. Ekki til hins betra. „Það er eins og lögin sem ég samdi á þessum tíma séu ekki mín bestu lög,“ segir Gunnar og brosir. Það hafi verið eitthvað þunglyndi í þessu. Svo hafi hann bara hætt þessu. „Mér fannst þetta orðið hundleiðinlegt,“ segir Gunnar. Hann hafi því bara hætt reykingunum. Það hafi verið lítið vandamál. „Þetta var algjör óþarfi. Og að drekka líka. Ég hætti því líka.“Þáttinn Mannamál á Hringbraut má sjá í heild sinni hér að neðan.
Mest lesið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Lífið „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Plokkað af krafti með forsetamaka Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Fleiri fréttir GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Sjá meira