Lífið

Secret Solstice: Yfir 1500 miðar seldust

Hátíðin verður haldin í Laugardal dagana 19.-21. júní og hafa nú sextíu hljómsveitir boðað komu sína í ár.
Hátíðin verður haldin í Laugardal dagana 19.-21. júní og hafa nú sextíu hljómsveitir boðað komu sína í ár. vísir
Yfir 1500 forsölumiðar seldust á tónlistarhátíðina Secret Solstice eftir að hljómsveitin Wu-Tang Clan var tilkynnt á hátíðina. Nú eru því aðeins um 1000 miðar eftir í næstu verðhækkun.

Friðrik Ólafsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, segir þessa miklu sölu ekki koma sér á óvart því hljómsveitin hafi haldið áfram að eignast nýjar kynslóðir af aðdáendum allt frá því hún steig fyrst fram á tíunda áratugnum.

Hátíðin verður haldin í Laugardal dagana 19.-21. júní og hafa nú sextíu hljómsveitir boðað komu sína í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×