Annar sigur Berlínarrefanna í röð | Oddur markahæstur hjá Emsdetten Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2015 19:28 Dagur og félagar hafa verið á ágætis skriði að undanförnu. vísir/getty
Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Füchse Berlin unnu fimm marka sigur, 26-31, á Friesenheim á útivelli í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag. Leikurinn var jafn framan af en Berlínarrefirnir tóku völdin snemma í seinni hálfleik. Þeir breyttu stöðunni úr 21-22 í 23-28 á 11 mínútna kafla og þá var björninn unninn. Konstantin Igropulo var markahæstur í liði Füchse með níu mörk en Tékkinn Petar Nenadic kom næstur með sjö. Arnór Þór Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Bergischer sem tapaði með átta marka mun fyrir Lemgo á útivelli, 34-26. Björgvin Páll Gústavsson stóð lengst af í marki Bergischer og varði átta skot. Wetzlar lagði Erlangen að velli, 28-26, á heimavelli. Sigurbergur Sveinsson komst ekki á blað hjá Erlangen. Þá vann Lübbecke öruggan sigur á Bietigheim, 32-24.Oddur var markahæstur í liði Emsdetten með 10 mörk.vísir/vilhelmFimm Íslendingalið voru í eldlínunni í B-deildinni. Oddur Gretarsson var markahæstur í liði Emsdetten sem vann þriggja marka sigur á HG Saarlouis á útivelli, 28-31. Oddur skoraði 10 mörk úr aðeins 11 skotum. Anton Rúnarsson kom næstur með sex mörk, þar af þrjú úr vítum. Ernir Hrafn Arnarson skoraði tvö mörk en Ólafur Bjarki Ragnarsson lék ekki með Emsdetten í kvöld vegna meiðsla. Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk fyrir Eisenach sem vann fjögurra marka sigur, 27-23, á Leipzig í toppslag. Með sigrinum komst Eisenach upp í 2. sæti deildarinnar en þrjú efstu liðin fara upp í Bundesliguna. Grosswallstadt vann 30-26 sigur á Hüttenberg í Íslendingaslag. Fannar Friðgeirsson skoraði þrjú mörk fyrir Grosswallstadt en Ragnar Jóhannsson fjögur fyrir Hüttenberg sem Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar. Þá beið Aue afhroð gegn Nordhorn-Lingen á útivelli, 27-17. Sigtryggur Rúnarsson skoraði tvö mörk fyrir Aue og þeir Hörður Sigþórsson og Árni Sigtryggsson eitt hvor. Bjarki Már Gunnarsson komst ekki á blað. Sveinbjörn Pétursson varði fjögur skot í marki Aue en þjálfari liðsins er Rúnar Sigtryggsson.
Handbolti Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira