Vigdís Hauks fékk Geir Ólafs í afmælisgjöf Bjarki Ármannsson skrifar 20. mars 2015 14:30 Vigdís hlýðir á ræðu í veislunni í morgun. Mynd/Úr einkasafni „
Dagurinn er náttúrulega bara yndislegur í alla staði,“ segir Vigdís Hauksdóttir alþingismaður sem er fimmtug í dag. Vigdís hélt upp á daginn með veislu í Turninum í Kópavogi í morgun, á sama tíma og sólmyrkvinn umtalaði átti sér stað. „Náttúruöflin sáu til þess að það var alveg heiðskýrt og veislugestir nutu sólmyrkvans til hins ítrasta.“Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra fylgdist með sólmyrkvanum.Mynd/Úr einkasafniVigdís hafði hvatt til þess að gestir tækju með sér sólmyrkvagleraugu, svo hægt væri að fylgjast með viðburðinum úti á svölum. Líkt og greint hefur verið frá eru slík gleraugu með öllu uppseld á Íslandi en Vigdís segir veislugesti hafa bjargað sér með ýmsum leiðum. „Ég var nú sjálf búin að kaupa einhvern lager,“ segir hún. „Svo var fólk þarna með heimatilbúin gleraugu. Það var þarna einn með skipt gler, þannig að sólin varð græn. Svo varð náttúrulega gleraugnaþurrð þannig veislugestir brugðu á það ráð að rífa bara í tvennt og horfa með öðru auganu og hafa hitt lokað.“ Margmenni var í veislunni í morgun, þar af þónokkrir þingmenn og borgarstjórnarfulltrúar. Einnig mætti Geir Ólafsson söngvari, en vinir Vigdísar komu henni á óvart með því að láta hann taka lagið fyrir afmælisbarnið. „Það var lagið My Way,“ segir Vigdís. „Því fólk í kringum mig segir að ég fari alltaf mínar eigin leiðir. Þannig þetta var góð afmælisgjöf.“ Aðspurð segir þingmaðurinn að sextugsaldurinn leggist vel í hana. Á morgun stendur svo til að fara út að borða og í leikhús með systrum hennar, en hún mun eyða deginum í dag með stórfjölskyldunni. „Þetta er bara þriggja daga veisla,“ segir hún.Afmælisbarnið með börnum sínum, Hlyni og Sólveigu.Mynd/Úr einkasafniFrænkur á góðri stund: Gunnhildur, María, Þóra, Auðbjörg, Vigdís, Sigurbjörg, Agnes, Sirra og Hróðný.Mynd/Úr einkasafni.
Tengdar fréttir Fátítt fyrirbæri á fimmtugsafmælinu Vigdís Hauksdóttir verður fimmtug á föstudaginn sama dag er sólmyrkvi. Hún efnir til morgunveislu svo gestirnir geti notið náttúrufyrirbærisins með henni. 18. mars 2015 09:30 Sjáðu sólmyrkvann á Íslandi í heild sinni Kvikmyndamaður Stöðvar 2 kom sér fyrir á þaki höfuðstöðva 365 við Skaftahlíð í morgun og myndaði sólmyrkvann með þar til gerðri linsu. 20. mars 2015 12:57 Heilluðust af sólmyrkvanum Ljósmyndarar Vísis fönguðu augnablikið þar sem fólk kom saman til að fylgjast með sólmyrkvanum. 20. mars 2015 10:57 „Vonum að fólkið sem sá myrkvann sé hamingjusamt“ Sólmyrkvinn fór fram úr björtustu vonum formanns Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. 20. mars 2015 12:43 Fólk hópaðist saman til að fylgjast með sólmyrkvanum Mikill fjöldi er saman kominn, meðal annars við Háskóla Íslands, Hörpu, Hallgrímskirkju, Perluna og þar sem hof ásatrúarmanna rís í Öskjuhlíð. 20. mars 2015 09:25 Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira
Fátítt fyrirbæri á fimmtugsafmælinu Vigdís Hauksdóttir verður fimmtug á föstudaginn sama dag er sólmyrkvi. Hún efnir til morgunveislu svo gestirnir geti notið náttúrufyrirbærisins með henni. 18. mars 2015 09:30
Sjáðu sólmyrkvann á Íslandi í heild sinni Kvikmyndamaður Stöðvar 2 kom sér fyrir á þaki höfuðstöðva 365 við Skaftahlíð í morgun og myndaði sólmyrkvann með þar til gerðri linsu. 20. mars 2015 12:57
Heilluðust af sólmyrkvanum Ljósmyndarar Vísis fönguðu augnablikið þar sem fólk kom saman til að fylgjast með sólmyrkvanum. 20. mars 2015 10:57
„Vonum að fólkið sem sá myrkvann sé hamingjusamt“ Sólmyrkvinn fór fram úr björtustu vonum formanns Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. 20. mars 2015 12:43
Fólk hópaðist saman til að fylgjast með sólmyrkvanum Mikill fjöldi er saman kominn, meðal annars við Háskóla Íslands, Hörpu, Hallgrímskirkju, Perluna og þar sem hof ásatrúarmanna rís í Öskjuhlíð. 20. mars 2015 09:25