Jón Arnór átti stóran þátt í mögnuðum Meistaradeildarsigri Unicaja Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. mars 2015 21:58 Jón Arnór spilaði frábærlega í kvöld. vísir/getty
Jón Arnór Stefánsson átti stórleik fyrir Unicaja Málaga í kvöld þegar liðið vann Anadolu Istanbúl, 93-90, í níundu umferð 16 liða úrslita Meistaradeildarinnar í körfubolta. Heimamenn á Málaga voru miklu betri í fyrri hálfleik. Þeir unnu fyrsta leikhlutann, 22-15, og voru tólf stigum yfir í hálfleik, 52-40. Gestirnir Frá Tyrklandi sóttu í sig veðrið í seinni hálfleik. Þeir unnu þriðja leikhlutann með níu stigum, 20-11, og aðeins munaði þremur stigum á liðunum fyrir lokafjórðunginn, 63-60. Unicaja, sem hefur ekki gengið jafnvel í Meistaradeildinni og heima á Spáni, náði sex stiga forystu, 81-75, þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum, en lenti þá í basli. Tyrkirnir skoruðu átta stig á móti einu og komust yfir, 83-82, þegar tvær mínútur voru eftir. En þá var komið að Jóni Arnóri Stefánssyni. Í næstu tveimur sóknum nældi íþróttamaður ársins í villu á leikmenn Anadolu. Hann skoraði úr fjórum vítaskotum í röð og breytti stöðunni í 86-83 fyrir heimamenn. Gestirnir jöfnuðu leikinn, 90-90, þegar fimm sekúndur voru eftir, en Ryan Toolson skoraði sigurkörfuna með þriggja stiga skoti þegar ein sekúnda var eftir. Frábær sigur Unicaja í höfn. Jón Arnór spilaði 26 mínútur í leiknum og skoraði 15 stig auk þess sem hann tók tvö fráköst. Þetta er þó aðeins annar sigur Unicaja Málaga í Meistaradeildinni, en það er á botni B-riðilsins ásamt Nizhny Novgorod.
Körfubolti Mest lesið Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Fótbolti Fleiri fréttir „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjá meira