Staðsetningartæki MH370 rafmagnslaust ári áður en vélin hvarf Samúel Karl Ólason skrifar 8. mars 2015 16:17 Ítarleg skýrsla um hvarf malasísku flugvélarinnar og leitina var birt í dag. Vísir/AFP
Staðsetningartæki flugvélar Malaysia Airlines, MH370, var rafmagnslaust og hafði verið það í heilt ár, áður en vélin hvarf sporlaust á leiðinni frá Kuala Lumpur til Peking fyrir ári síðan. Ítarleg skýrsla um hvarf malasísku flugvélarinnar og leitina var birt í dag. Í skýrslunni koma þá hvergi fram nýjar upplýsingar sem gætu varpað ljósi á örlög flugvélarinnar og 239 farþega hennar. Þrátt fyrir umfangsmikla leit hefur hvorki tangur né tetur fundist af vélinni.AP fréttaveitan hefur eftir Tony Abbott, forsætisráðherra Ástralíu, að leitinni yrði ekki hætt fyrr en vélin fyndist. Skýrslan er 584 blaðsíður og var samin af 19 sérfræðingum. Í henni er að sjá fjölmargar upplýsingar um áhöfn vélarinnar eins og sjúkrasögur og fjármálaupplýsingar. Einnig er farið út í viðhald og ástand vélarinnar. Allar upplýsingar, að rafmagnsleysi staðsetningartækisins undanskildu, gefa í skyn að ekkert óeðlilegt hafi átt sér stað áður en vélinni var flogið af stað. Þar segir að ekki hafi uppgötvast að rafhlaðan í tækinu væri tóm vegna skráningarvillu. Viðhaldsaðilar áttuðu sig ekki á að skipta þyrfti um rafhlöðu. Í vélinni voru alls 221 kíló af farsímarafhlöðum frá Motorola en þær voru skoðaðar degi áður en vélin tók á loft. Rafhlöðurnar voru ekki skilgreindar sem hættulegur farmur. Fjölskyldumeðlimir þeirra sem fórust með vélinni héldu í dag minningarathöfn í Kuala Lumpur þar sem lesin voru ljóð og fólk bað saman.
Flugvélahvarf MH370 Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Sjá meira