Vildu gera vel við sig á Ibiza Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. febrúar 2015 12:00 Nikola Karabatic eftir handtöku hans í september árið 2012. Vísir/AFP
Franskir fjölmiðlar hafa undir höndum gögn saksóknara þar í landi fyrir málarekstur þess gegn Nikola Karabatic og fleiri handboltamönnum sem gefið er að sök að hafa hagrætt úrslitum leiks Montpellier og Cesson-Rennes í maí árið 2012. Málið vakti gríðarlega athygli á sínum tíma og miðað við gögnin er rannsókn franskra yfirvalda umfangsmikil. Franska blaðið L'Equipe segir að fjölmargir leikmenn Montpellier liggi undir grun um að hafa tapað viljandi fyrir Cesson-Rennes og grætt á því samtals 255 þúsund evrur - um 38 milljónir króna samkvæmt núgildandi gengi. Serbneska skyttan Mladen Bojinovic er sagður vera í aðalhlutverki í málinu en hann var búinn að vera á mála hjá Montpellier í áratug þegar málið kom upp. Stuttu síðar yfirgaf hann félagið og samdi við PSG, þar sem hann er enn í dag. Gengur saksóknari svo langt að fullyrða að Bojinovic hafi glímt við spilafíkn. Bojinovic mun hafa gefið grænt ljóst á aðgerðina sem svo fleiri leikmenn tóku þátt í - meðal þeirra frönsku landsliðsmennirnir og bræðurnir Nikola og Luka Karabatic, sem og Samuel Honrubia. Karabatic-bræður hafa ávallt neitað sök en saksóknarar virðast sannfærðir um sök þeirra sem og annarra leikmanna félagsins. Nikola Karabatic tók út 1500 evrur af reikningi sínum fáeinum dögum fyrir leikinn og hefur kærasta hans viðurkennt að hún hafi fengið fyrirmæli frá honum um að taka við peningnum og veðja á úrslit hans. Var þetta eina úttekt Karabatic yfir margra mánaða tímabil. Yfirvöld í Frakklandi telja að ein möguleg ástæða fyrir veðmálbraskinu væri að leikmenn vildu gera vel við sig í ferð til Ibiza á Spáni í lok tímabilsins. SMS-samskipti Luka Karabatic og kærustu hans virðast renna stoðum undir þær grunsemdir. Enn fremur er því haldið fram að þessi aðgerð hafi verið ómöguleg án vitneskju og þátttöku flestra ef ekki allra leikmanna í liðinu og því deili margir sök í málinu. Búist er við að réttarhöld í málinu hefjist á miðju þessu ári.
Handbolti Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Enski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Enski boltinn Fleiri fréttir Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Sjá meira