Aðeins þrír hlaupið meira en Gylfi Þór á tímabilinu Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. febrúar 2015 09:00 Gylfi Þór Sigurðsson hljóp og hljóp og tryggði Swansea sigur gegn Man. Utd. vísir/gettu
James Milner, miðjumaður Manchester City, hefur spilað vel að undanförnu, en hann skoraði í öðrum leiknum í röð þegar meistararnir unnu Stoke, 4-1, á miðvikudaginn. Milner hafði ekki skorað í tveimur leikjum í röð í tæpan áratug fyrir miðvikudagskvöldið, en það var ekki það eina merkilega við þann leik fyrir enska miðjumanninn. Milner setti nýtt met í dugnaði á tímabilinu, en hann hljóp meira í þeim leik en nokkur annar hefur gert í einum leik ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni. Samkvæmt leikmannatölfræði EA Sports, opinberri og ítarlegri tölfræðisamantekt úrvalsdeildarinnar yfir frammistöðu leikmanna, hljóp Milner 13,56 km í sigrinum gegn Stoke.James Milner var duglegur og skoraði.vísir/gettyMeð þessari frammistöðu rétt skreið hann yfir George Boyd, leikmann Burnley, sem er að öðrum ólöstuðum duglegasti leikmaður úrvalsdeildarinnar. Boyd átti metið á leiktíðinni þegar hann hljóp 13,55 km í leik gegn Newcastle, en þessi gríðarlega vinnusami leikmaður kemur fjórum sinnum fyrir á topp 10 listanum yfir mestu hlaupalengdirnar í einum leik á tímabilinu. Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Swansea og íslenska landsliðsins, er í sjöunda sæti listans eftir frammistöðu sína gegn Manchester United í fyrstu umferð deildarinnar. Fyrir utan að skora sigurmarkið í þeim leik hljóp Gylfi Þór 13,18 km, en bara George Boyd, James Milner og Tom Carroll, sem hljóp 13,47 km í leik með Swansea gegn Southampton í byrjun mánaðarins, eru fyrir ofan okkar mann.Tíu mestu hlaupalengdir leikmanns í einum leik á tímabilinu: James Milner, Man. City - Stoke, 13,56 km George Boyd, Burnley - Newcastle, 13,55 km Tom Carroll, Swansea - Southampton, 13,47 km George Boyd, Burnley - Stoke, 13,34 km George Boyd, Burnley - Aston Villa, 13,24 km Gylfi Þór Sigurðsson, Swansea - Man. Utd, 13,18 km Christian Eriksen, Tottenham - Swansea, 13,12 km Marouane Fellaini, Man. Utd - Southampton, 13,12 km
Enski boltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Fleiri fréttir Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Sjá meira