Sport

Armstrong klessti á og lét kærustuna taka á sig sökina

Anne Hansen og Lance Armstrong.
Anne Hansen og Lance Armstrong. vísir/getty
Einn frægasti svindlari íþróttasögunnar, Lance Armstrong, er enn á ný kominn í fréttirnar á röngum forsendum.

Hann var að skemmta sér um jólin með kærustu sinni til sjö ára, Önnu Hansen, og klessti á tvo kyrrstæða bíla á leiðinni heim. Hann lét eiginkonuna taka á sig sökina.

Armstrong og kærastan sögðu við lögregluna að hún hefði verið að keyra. Síðar komst lögreglan að sannleikanum enda hafði Hansen sagt sjónvarvottum frá því að Armstrong hefði setið við stýrið.

„Ég er orðin þreytt á því að sjá nafn fjölskyldunnar rifið niður í fjölmiðlum og ég vildi vernda börnin okkar. Þess vegna var ég til í að taka á mig sökina," sagði Hansen í lögregluskýrslu sem bandarískir miðlar hafa birt.

Málið verður tekið fyrir í mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×