Lífið

Safnaði 1,3 milljónum með stórtónleikum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bæði félögin snerta Alexander Birgi.
Bæði félögin snerta Alexander Birgi. vísir/skjáskot
Stórhuga þrettán ára gleðigjafi afhenti í gær Einhverfusamtökunum og Birtu veglega styrki sem hann safnaði með því að standa fyrir stórtónleikum í Grindavíkurkirkju.

Alexander Birgir Björnsson, þrettán ára nemandi í Grunnaskóla Grindavíkur, stóð fyrir tónleikum 24. nóvember til styrktar Einhverfusamtökunum og Birtu – landssamtökum foreldra barna/ungmenna sem látist hafa fyrirvaralaust.

Bæði félögin snerta Alexander Birgi. Hann er einhverfur og tvö af systrabörnum hans einnig. Þá lést bróðir hans af slysförum árið 2010. 

Haustið 2013 fór Alexander að skipuleggja tónleika.

Mamma hans frétti fljótt af því og forvitnaðist um hvað væri að gerast. Þá stóð ekki á svörum.

Hann fékk Pétur Örn Guðmundsson frænda sinn og tónlistarmann til að aðstoða sig.

„Ég fékk ekkert nei „ég get þetta ekki“ það sögðu allir já og það var í raun bara vandamál að koma öllu þessu fólki fyrir,“ segir Pétur.

Í gær afhenti svo Alexander það sem safnaðist með tónleiknum eða hátt í þrettán hundruð þúsund sem hann skipti á milli félaganna tveggja.

„Hann er dásamlegur, hann gefur svo mikla gleði og hlýju og nær einhvernvegin það besta útúr fólki. Ég er bara ofsalega stolt af honum,“ segir Elín Björg Birgisdóttir, kennari og móðir Alexanders.

En ætlar Alexander að halda aðra svipaða tónleika í framtíðinni.

„Já, árið 2016, maður veit aldrei.“


Tengdar fréttir

Þrettán ára einhverfur drengur heldur tónleika

Alexander Birgir Björnsson hefur upplifað margt á sinni stuttu ævi. Hann hefur upplifað mikinn missi en siglir nú í betri tíma og lætur langþráðan draum rætast.

Alexander Birgir Grindvíkingur ársins

Alexander Birgir Björnsson og fjölskylda hafa verið valin Grindvíkingar ársins 2014 en þetta kemur fram í frétt á síðu Grindavíkurbæjar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×