Kölluð rasisti, fasisti og nú síðast nasisti Jakob Bjarnar skrifar 15. janúar 2015 16:41 Guðfinna segist hafa verið kölluð ýmsum nöfnum svo sem rasisti, fasisti og „nú síðast kallaði Salmann Tamimi mig nasista.“
Svo virðist sem stöðugt færist aukin harka í umræðuna á Íslandi. Ein þeirra sem telur sig merkja það er Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, sem furðar sig á því að vera kölluð nasisti. Hún telur sig ekki hafa unnið fyrir þeim stimpli. „Ég hef verið kölluð ýmsum nöfnum svo sem rasisti, fasisti og nú síðast kallaði Salmann Tamimi mig nasista fyrir þá skoðun mína að ég sé mótfallin því að trúfélögum sé almennt gefnar lóðir og á staðsetningu fyrirhugaðrar mosku í Sogamýrinni. Ég vil hins vegar árétta að ég er ekki á móti því að byggð moska í Reykjavík og hef aldrei verið,“ segir Guðfinna í viðtali við Vísi. Guðfinna segir sér ekki hafa sárnað vegna ummælanna, þau dæmi sig sjálf. Hún vísar til viðtals sem DV var með við Salmann nú nýverið vegna umræðu sem geisaði í vikunni vegna umdeildra ummæla Sjálfstæðismannsins og þingmannsins Ásmundar Friðrikssonar þess efnis hvort ekki væri vert að rannsaka múslíma á Íslandi sérstaklega að teknu tilliti til þess hvort þeir hafi einhver tengsl við hryðjuverkahópa. „Hann sakar Ásmund um það að vera spila sama pólitíska leikinn og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins. „Það er eins og þau séu í einhverri undarlegri keppni um það hver sé mesti nasistinn,“ segir Salman, sem er mikið niðri fyrir í samtalinu við blaðamann.“ Guðfinna segist hingað til ekki hafa velt trúmálum neitt sérstaklega fyrir sér, segir að sér sé nokkuð sama hverrar trúar fólk er eða hvort það sé trúlaust. „Ég þoli hins vegar ekki öfgar hvort sem þær eru í nafni trúar eða ekki og vil opna umræðu um þessi mál. Oft á dag berast fréttir hingað til lands um voðaverk öfgahópa. Við þurfum að taka þá umræðu af skynsemi og yfirvegun m.a. hvort hætta sé á að slíkt berist hingað til lands og hvernig við eigum þá að sporna við því.“ Guðfinna segist aðspurð ekki hafa hugleitt hvort hún vilji kæra þessi ummæli en dæmi eru um slík mál. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og reyndar fleiri Framsóknarmenn, kvartar undan því að umræða um flokk sin sé komin út yfir öll velsæmismörk. „Sumir virðast vera með Framsóknarmenn á heilanum og reyna að upphefja sig með því að nota ýmis ummæli án tengsla við raunveruleg ummæli fulltrúa Framsóknar,“ segir Guðfinna um þá umræðu.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira