FÍB óskar eftir rannsókn á iðgjöldum bílatrygginga Stefán Árni Pálsson skrifar 2. janúar 2015 16:36 Margir eru með endurnýjun á tryggingum um áramótin og iðgjöld eru ákveðin ár fram í tímann. mynd/aðsend
FÍB hefur ástæðu til að ætla að afnám vörugjalda af varahlutum bíla og lækkun virðisaukaskatts eftir áramót komi ekki fram í lægri iðgjöldum bílatrygginga en þetta kemur fram í tilkynningu frá FÍB. Margir eru með endurnýjun á tryggingum um áramótin og iðgjöld eru ákveðin ár fram í tímann. Fram kemur í tilkynningunni að lausleg könnun FÍB meðal bíleigenda gefi til kynna að iðgjöld hafi ekki lækkað eins og lög gera ráð fyrir, heldur ýmist hækkað eða staðið í stað. Á árinu sem var að líða hækkuðu iðgjöld ökutækjatrygginga langt umfram verðbólgu þrátt fyrir fækkun alvarlegra umferðarslysa. FÍB telur tilefni til að iðgjöld tryggingafélaganna verði tekin til rannsóknar, þar sem ástæða er til að óttast að jákvæðar ytri aðstæður í ökutækjatryggingum séu ekki að skila sér til neytenda. FÍB beinir því til innanríkisráðherra að fela Neytendastofu að hefja rannsókn á tryggingafélögunum þegar í stað. Alla jafna ætti slík rannsókn heima hjá Fjármálaeftirlitinu (FME) en sú stofnun er í mjög óeðlilegri stöðu. FME á að tryggja að tryggingafélögin séu fjárhagslega burðug til að mæta áföllum en jafnframt á stofnunin að sjá til þess að ekki sé verið að innheimta of há iðgjöld af lögbundnum tryggingum. Fyrra hlutverkið virðist vega þyngra en það síðara hjá FME. FÍB telur eðlilegt að svona rannsókn sé framkvæmd af Neytendastofu enda snertir þetta hagsmuni neytenda. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 0,81% síðustu 12 mánuði. Á sama tíma hafa iðgjöld ábyrgðartrygginga ökutækja hækkað um 4,28% og iðgjöld kaskótrygginga um 1,62%. Á nýbyrjuðu ári lækkar kostnaður tryggingafélaganna vegna ökutækjatjóna, þar sem 15% vörugjald af innfluttum varahlutum verður aflagt og virðisaukaskattur á viðgerðarvinnu, varahluti og nýja bíla lækkar um tæp 6%. Ekkert bendir til að tryggingafélögin hafi tekið tillit til þessarar kostnaðarlækkunar við útgáfu iðgjalda fyrir næsta ár. „Ekki þarf að hafa mörg orð um áhrif þess þegar afnám vörugjalda og lækkun virðisaukaskatts skilar sér ekki til neytenda. Þessum breytingum er ætlað að vega upp á móti hækkun í neðra þrepi skattsins. Tryggingaiðgjöld vega einnig þungt í vísitölu verðtryggingar. Af þessum ástæðum er mikilvægt að ítarleg rannsókn fari fram sem fyrst á hegðun tryggingafélaganna í þessum efnum,“ segir í tilkynningu FÍB.
Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira