Kiel lenti í vandræðum en hélt áfram sigurgöngu sinni á heimavelli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2015 18:24 Alfreð Gíslason. Vísir/Getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar lentu í miklum vandræðum á heimavelli í Meistaradeildinni í kvöld en redduðu sér með góðum endaspretti. Kiel vann þriggja marka heimasigur á slóvenska liðinu RK Celje, 35-32, eftir að hafa vera mest fjórum mörkum undir í seinni hálfleiknum. Kiel hefur þar með unnið alla tíu heimaleiki tímabilsins í öllum keppnum. Domagoj Duvnjak var markahæstur hjá Kiel með 8 mörk en Rune Dahmke skoraði 6 mörk eins og Spánverjinn Joan Canellas. Blaz Janc skoraði mest fyrir Celje eða sjö mörk. RK Celje heimsótti Flensburg-Handewitt til Þýskalands fyrir tíu dögum en þurfti þá að sætta sig við tíu marka tap. Nú spilaði liðið miklu betur. Kiel tapaði fyrir ungverska liðinu Veszprém KC í Meistaradeildinni um síðustu helgi og það er ekki oft sem lið Alfreðs tapa tvisvar á fjórum dögum enda kom það á daginn að strákarnir hans fundu aukagír þegar stefndi í tap undir lok leiksins. Kiel náði mest fjögurra marka forystu í fyrri hálfleiknum, 12-8 og 15-11 en slóvenska liðið minnkaði muninn í tvö fyrir mörk fyrir hálfleik, 16-14. Króatinn Domagoj Duvnjak skoraði fimm mörk í fyrri hálfleiknum en það hægðist töluvert á markaskorun hans í upphafi þess síðari. Kiel var þremur mörkum yfir, 18-15, eftir þriggja mínútna leik í seinni hálfleik en þá fór allt í baklás og Celje vann næstu tíu mínútur 10-3 og náði fjögurra marka forystu, 25-21. Kiel vaknaði þá af værum blundi og næstu þrjú mörk voru þýsk og munurinn því aftur bara eitt mark. Kiel snéri síðan leiknum þegar tæpar átta mínútur voru eftir þegar liðið breytti stöðunni úr 27-30 í 34-31 á aðeins rúmum sex mínútum. Eftir það var Kiel með tök á leiknum sem liðið hélt til leiksloka.
Handbolti Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira