Best að fela sig í púðunum í IKEA Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar 8. apríl 2015 10:00 Megan Dunley og Ellen Rosdahl eru byrjaðar að leita að góðum felustöðum Vísir/Valli „
Megan vinkona mín sá frétt um svona viðburð í Hollandi, þar sem mættu um 30.000 manns að fela sig í IKEA. Okkur fannst þetta svo góð hugmynd að við ákváðum að slá til,“ segir Ellen Rosdahl, skiptinemi frá Svíþjóð. Hún, ásamt Megan Dunley vinkonu sinni, sem er skiptinemi frá Bandaríkjunum, ætla í feluleik í IKEA á laugardaginn. „Vonandi verður þetta í lagi,“ segir hún og hlær. „Þetta er eingöngu til gamans gert og það eru engin verðlaun eða slíkt. Þú getur bara mætt með vinum þínum eða fundið þér einhvern til þess að leika við á staðnum,“ segir hún. Þær vinkonurnar sömdu reglur fyrir feluleikinn sem þátttakendur verða að fara eftir. „Það má ekki brjóta neitt og það er alveg bannað að vera dónalegur við starfsfólkið,“ segir Ellen. Hún segir IKEA vera hinn fullkomna stað til þess að fela sig á. „Það er samt líklega best að fela sig í púðunum eða á bak við gardínurnar. Svo er fullt af rúmum þarna og ætli það verði ekki einhver undir þeim öllum á laugardaginn,“ segir hún að lokum og hlær. Til stendur að leikar hefjist klukkan eitt.
Mest lesið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Sjá meira